Ronaldo nær báðum leikjunum á móti Manchester United Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. september 2018 13:00 Ronaldo var ekki sáttur við spjaldið vísir/getty
UEFA hefur staðfest eins leiks bann Cristiano Ronaldo fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum á móti Valencia í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í síðustu viku. Ronaldo virtist ekkert gera af sér og grét hástöfum af undrun er hann rölti súr og svekktur af velli. Juventus vann leikinn engu að síður, 2-0. Eflaust hefur Portúgalinn haft áhyggjur af því að missa af öðrum eða báðum leikjunum á móti sínu gamla liði Manchester United en enska stórveldið og Juventus drógust saman í riðil. Svo verður ekki því Ronaldo missir af næsta leik á móti Young Boys en verður svo mættur aftur í þriðju umferðina þegar United tekur á móti Juventus á Old Trafford. Cristiano Ronaldo er, eins og allir vita, einn besti leikmaður í sögu Manchester United en hann spilaði þar frá 2003-2009 og vann Englandsmeistaratitilinn þrjú ár í röð frá 2007-2009, Meistaradeildina árið 2008 og þá var hann útnefndur leikmaður ársins 2007 og 2008. Manchester United vann Young Boys á útivelli, 3-0, í fyrstu umferð riðlakeppninnar en næstu leikir fara fram á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum Handbolti Stórundarleg hegðun O'Sullivans Sport Fleiri fréttir Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Arnar fundar með KSÍ Freyr til Noregs í viðræður og Högmo tekinn við Molde Sjáðu sigurmark Bergvall gegn Liverpool Maguire tvisvar tekinn fyrir hraðakstur á þremur dögum Hljóp beint í fang systur sinnar eftir að hafa haldið hreinu gegn Liverpool Gerði grín að gagnrýni Arteta á boltann Jón Daði á báðum áttum en opinn fyrir heimkomu Fyrrum vonarstjarna Rússa lést á víglínunni í Úkraínu Sjá meira