Þessi 27 ára gamli kylfingur er búinn að vera lengi í bransanum en hann var sá yngsti til að spila á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2006 aðeins fimmtán ára gamall.
Ári síðar varð hann yngsti kylfingurinn í 50 ár til að komast í gegnum niðurskurðinn á PGA-móti þegar að hann endaði í 20. sæti á Sony-meistaramótinu á Havaí.
„Ég er samkynhneigður. Mörg ykkar vissuð það eflaust. Ég býst ekki við því að þið skiljið mig eða samþykkið mig,“ segir Fujikawa í færslu á Instagram-síðu sinni. „Það er mín von að þetta muni hvetja ykkur til meiri samkenndar og til að elska hvort annað.“
Fujikawa segir í færslunni að hann hafi verið á báðum áttum við að opna sig um kynhneigð sína.
„Mér fannst ég ekki þurfa að koma út úr skápnum því það á ekki að skipta neinu máli hvort að einhver viti þetta. En svo mundi ég bara eftir sögum annarra sem að hjálpuðu mér í gegnum erfiðustu tímana,“ segir Tadd Fujikawa.