Kindin sem varð hvítabjörn
Það varð uppi fótur og fit árið 2015 þegar spænskur ferðamaður kom móður og másandi að þjóðgarðsverði og sagðist hafa séð hvítabjörn í Jökulsárgljúfrum, miðja vegu milli Hólmatungna og Vesturdals. Landhelgisgæslan flaug yfir svæðið en enginn hvítabjörn eða ummerki um hann fundust við leitina. Yfirlögregluþjónn sagði við mbl.is að trúlega hefði þetta verið kind eða snjóskafl, já eða hvort tveggja.
Á spariskóm í vetrarfærð
Um 40 bílar festust í ófærð á Reynisfjalli árið 2016. Þegar fréttir bárust af fjallinu kom í ljós að flestir bílanna voru á sumardekkjum og ökumennirnir á lakkskónum. Orri Örvarsson, formaður björgunarsveitarinnar Víkverja, sagði í viðtali við RÚV, að fólk væri greinilega ekki að „fara í einhvern vetur“
Gps leiddi hann til Siglufjarðar
Bandarískur ferðamaður sem ætlaði á Hótel Frón á Laugavegi í Reykjavík eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli árið 2016 endaði á Laugarvegi á Siglufirði vegna misskilnings við notkun á GPS-tæki. Hann var heldur vandræðalegur þegar hann bankaði upp á hjá Sigurlínu Káradóttur, sem býr við Laugarveg á Siglufirði, og spurði hvort Hótel Frón væri í grenndinni.
Horfðu upp en ekki niður
Á sunnudagsnótt var tilkynnt um hóp erlendra ferðamanna sem festist úti í Gróttu eftir að flæddi að. Samkvæmt tilkynningunni var fólkið að horfa á norðurljósin. Björgunarsveit kom með bát og ferjaði fólkið í land.
Joey á Íslandi
Ferðamaður sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í upphafi árs greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til að sleppa við gjaldið, líkt og Joey Tribbiani úr þáttaröðinni Friends. Honum var vísað frá og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig þar sem hann væri svo dúðaður.Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo að lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á staðinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Bannað að leggja
Erlendur ferðamaður sem var að fara í gegnum vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í maí reyndist vera með íslenskt umferðarskilti í fórum sínum. Um var að ræða skilti sem gaf til kynna að bifreiðastöður væru bannaðar.Í samtali við lögreglumann úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum kvaðst ferðalangurinn hafa keypt skiltið af farandsala í vegkanti milli Hafnar í Hornafirði og Víkur í Mýrdal og greitt fyrir það 3.000 krónur.
Sá fyrrnefndi afsalaði sér skiltinu sem fært var í áhaldahús Reykjanesbæjar þar sem það unir hag sínum vel.

Hraðakstur og hringtorg
Reglulega berast fréttir frá lögreglu af ofurölvi ferðamönnum sem vita hvorki í þennan heim né annan og þurfa að gista fangageymslur þar til víman rennur af þeim. Þá berast reglulega fregnir af ferðamönnum sem eru að drífa sig og hafa ekki hugmynd um að hér sé aðeins hámarkshraði upp á 90 km/klst.Þannig voru tveir teknir í síðustu viku á yfir 150 km hraða á Reykjanesbraut. Sá sem nálgaðist 160 þurfti að greiða 230 þúsund krónur í sekt. Þá kom í ljós við rannsókn Vegagerðarinnar árið 2016 að erlendir ökumenn komu við sögu í 22% þeirra slysa sem urðu á hringtorgum