Fjölskyldumorð í Gautaborg: Vaknaði við öskur fyrir utan gluggann Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. september 2018 13:39 Maðurinn tilkynnti sjálfur um morðin skömmu fyrir klukkan 5 í morgun. Vísir/Getty
Karlmaður á fertugsaldri er grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína og tvö ung börn í Frölunda í Gautaborg snemma í morgun. Nágrannakona fjölskyldunnar lýsir því í samtali við sænska dagblaðið Aftonbladet að hún hafi vaknað við hátt öskur fyrir utan herbergisglugga sinn. Maðurinn tilkynnti sjálfur um morðin skömmu fyrir klukkan 5 í morgun. Lögregla handtók manninn í íbúðinni, þar sem lík konunnar og barnanna tveggja fundust. Hvorugt barnanna hafði náð tveggja ára aldri en lík þeirra fundust uppi í rúmum þeirra, að því er fram kemur í frétt Aftonbladet.Sjá einnig: Myrti konu sína og börn í Gautaborg Nágrannakona fjölskyldunnar segir í samtali við blaðið að hún hafi vaknað við skerandi hátt öskur nokkrum mínútum áður en lögreglu var tilkynnt um morðin. „Ég heyrði í háværum manni fyrir utan gluggann minn, ég skildi ekki það sem hann sagði en röddin var há og óvægin,“ er haft eftir konunni sem ekki vill láta nafn síns getið. Konan segist jafnframt ekki hafa þekkt fjölskylduna en hún sé þó slegin vegna málsins. Hverfið sé kyrrlátt og gott, og því afar fátítt að nokkuð þessu líkt gerist. „Ég er í losti og þetta er hræðilegt.“ Maðurinn sem grunaður er um að hafa framið morðin var fluttur á sjúkrahús en hann hafði skaðað sjálfan sig þegar lögregla kom á staðinn. Þá rannsakar lögregla nú vettvang glæpsins og hefur íbúðarhúsið verið girt af vegna rannsóknarinnar.
Norðurlönd Tengdar fréttir Myrti konu sína og börn í Gautaborg Maðurinn hringdi sjálfur og tilkynnti um morðin til lögreglu. 2. september 2018 07:53 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Myrti konu sína og börn í Gautaborg Maðurinn hringdi sjálfur og tilkynnti um morðin til lögreglu. 2. september 2018 07:53