„Vissi ekki hvort ég gæti notað nafnið mitt aftur“ Stefán Árni Pálsson skrifar 6. september 2018 10:30 Svala Björgvins settist niður með Sindra Sindrasyni. „
Það er meira spennandi að vera lítill fiskur í stórri tjörn, það er miklu meira áhugavert,“ segir söngkonan Svala Björgvinsdóttir í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. Svala skrifaði á dögunum undir samning við plötufyrirtækið Sony. „Þetta var mjög óvænt og kom í kjölfarið af Eurovision. Það er rosalega stór gluggi fyrir listamenn. Þetta er reyndar dreifingasamningur sem þýðir það að þeir dreifa tónlistinni.“ Þegar Svala horfir til baka og skoðar ferilinn þá er hún stoltust af því þegar hún söng inn á Anastasia teiknimyndina. „Ég er mikill teiknimynda aðdáandi og ég held að ég hafi verið átján ára þegar ég söng inn á þá teiknimynd. Þessi lög hafa lifað svo lengi og ég er ennþá að taka þau á jólatónleikum og það eru ennþá litlir krakkar og fullorðið fólk að koma til mín og segjast elska þessi lög.“Svala kemur árlega fram á jólatónleikum föður síns.Hún segist vilja gera meira af því að syngja inn á teiknimyndir. Margir vita hver faðir Svölu Björgvins er, enginn annar en Björgvin Halldórsson en foreldrar hennar pressuðu ekkert á það að hún myndi fara út í tónlistabransann. „Þau voru bara mjög ströng á því að ég myndi klára skólann. Mér voru boðnir samningar þegar ég var mjög ung í Bretlandi og í Evrópu við Virgin og Sony og allskonar fyrirtæki og það var bara alltaf þú verður að klára skólann og þegar ég væri búin að því mátti ég gera hvað sem er.“ Svölu var fljótt gert það ljóst að hún myndi ekki fá mikla hjálp í gegnum sambönd sín við föður sinn. „Ég varð að suða í honum að fá að syngja þessi jólalög og hann vildi ekkert að ég væri að fara í bransann, ég væri bara barn. Um leið og ég var orðin svona þrettán ára þá sagði pabbi að ef ég ætlaði út í tónlistabransann þá myndi ég gera það, á mínum forsendum og ætti ekki að nota nafnið hans sem einhvern stokkpall. Ég og bróðir minn höfum alltaf þurft að gera hlutina á okkar eign forsendum þó að pabbi hafi alltaf verið til staðar en hann vildi að við myndum finna okkar eigin leið. Stundum heldur fólk að ég hafi það voðalega easy útaf því að pabbi minn er Björgvin Halldórsson. Stundum er það bara erfiðara því þú þarft jafnvel að sanna þig ennþá meira.“Svala er spennt fyrir komandi plötu.Hún segist alveg hafa hugsað að tónlistabransinn hafi ekki verið fyrir sig. „Ég held að það hafi gerst í raun eftir Real Me tímabilið. Ég var í fimm ár hjá EMI og Priority og það var ofboðslega stórt ævintýri, miklir peningar og rosalega pressa frá öllum hérna heima. Ekki beint frá mér eða fyrirtækinu, bara pressa frá öllum hérna heima að ég væri að fara meika það. Eitthvað sem ég var ekki að hugsa, ég hugsaði bara að þetta væri risastórt tækifæri. Svo fer það allt til fjandans þegar plötufyrirtækið er selt og ég festist þar og við þurftum að fara í mál. Þetta er æðislega löng og leiðinleg saga en eftir það var ég brennd og ég gat ekki notað nafnið mitt í þrjú ár og vissi ekki hvort ég gæti notað nafnið mitt aftur. Ég hugsaði bara, er ég bara búin að vera og varð rosalega þunglynd og leið ekki vel. Ég vissi ekkert hvað ég vildi gera við líf mitt.“ Hún segir að í framhaldinu hafi andargiftin komið aftur. „Ég byrja semja mikið með Krumma bróðir og fer mikið til Þýskalands og Bretlands og er að semja þar með vinum mínum. Þá kemur út Freedom platan og kemur hún út árið 2005, rétt eftir að ég vinn þetta mál við plötufyrirtækið. Svo fer ég bara í Steed Lord eftir það. Núna ákveð ég að fara alveg sóló og ég held að það hafi kviknað svolítið eftir Eurovision því ég fann bara fyrir því að fólk vildi fá meira frá Svölu og mér þótti ótrúlega vænt um það og fann rosalegan stuðning frá fólki hérna heima, sem mér fannst alveg rosalega dýrmætt. Ég var bara í sjokki eftir Eurovision hvað fólk studdi mig og þetta lag.“ Á dögunum kom út nýtt lag frá Svölu sem ber nafnið In the Night sem er fyrsta lagið sem kemur út af næstu plötu sem kemur út í haust. „Draumaverkefnið er að mig hefur alltaf langað að vera í söngleik, vera á sviði og dansa og syngja,“ segir Svala en hér að neðan má sjá viðtalið við söngkonuna í heild sinni.
Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira