Leki kom á Alþjóðlegu geimstöðina Kjartan Kjartansson skrifar 30. ágúst 2018 15:18 Útsýnið frá Alþjóðlegu geimstöðinni á mynd sem þýski geimfarinn Alexander Gerst tók nýlega. ESA/NASA-A.Gerst
Áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðina vinnur nú að viðgerðum eftir að hægur súrefnisleki greindist um borð í gærkvöldi. Sex geimfarar eru um borð í geimstöðinni en þeir eru sagðir hafa nægt loft um borð sem endist þeim í nokkrar vikur. Í frétt á vef Evrópsku geimstofnunarinnar (ESA) kemur fram að leiðangursstjórn geimstöðvarinnar hafi uppgötvað þrýstingsfall í gærkvöldi. Það hafi þó verið afar lítið og því hafi áhöfninni verið leyft að sofa áfram. Svo virðist sem að leki hafi komið á Soyuz-geimfar sem liggur við festar við rússneska hluta geimstöðvarinnar. Geimfararnir vinna nú að því að koma í veg fyrir lekann. Space.com hefur eftir rússneskum fjölmiðlum að lekinn hafi komið af völdum lítillar sprungu sem virðist hafa myndast við árekstur við geimörðu, rykagnir í geimnum. Þrír bandarískir, tveir rússneskir og einn þýskur geimfari er um borð í geimstöðinni. Soyuz-geimfarið flutti þau Serenu Auñón-Chancellor, Sergei Prokópjév og Alexander Gerst til geimstöðvarinnar í júní. Það á að koma þeim heim til jarðar í desember. Dmitrí Rogozin, forstjóri rússnesku geimstofnunarinnar Roscosmos, segir að geimfararnir geti gert við farið með tækjum um borð í geimstöðinni.
Tækni Vísindi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira