Júlía kemur að skipulagningu hátíðarinnar hérlendis ásamt Þórunni Völu Valdimarsdóttur söngkonu, Gróu Margréti Valdimarsdóttur fiðluleikara og David Cutright tónskáldi sem er einn af listrænum stjórnendum hátíðarinnar.
„Þarna er verið að tengja saman Bandaríkin og Norðurlönd. Hátíðin var í Árósum í síðustu viku en nú koma listamennirnir til Íslands.“ Á hátíðinni verða flutt verk fyrir ýmsar gerðir strengjahljóðfæra en einnig koma fram klarínettleikari og söngkonur.

„Ég held að þetta sá svolítið einstök hátíð á sínu sviði, alla vega hvað varðar samstarf tónskálda og strengjaleikara, en mörg þeirra eru jafnt flytjendur og tónskáld. Í því samhengi verður virkilega gaman og áhugavert að kanna þessi, oft óskilgreindu mörk sköpunar og túlkunar í nýrri músík, í raunverulegu samtali,“ segir Júlía.
Hún segir sum þessara verka sem flutt verða teygja sig inn fyrir aðrar listgreinar þannig að úr verði öðruvísi upplifun en fólk ætti að venjast innan hins hefðbundna klassíska ramma.
Auk þrennra tónleika verða haldnir fyrirlestrar í Listaháskólanum og vinnustofur þar sem meðal annars mastersnemar í tónsmíðum og flytjendur munu vinna saman.