Mikið mun mæða á Mourinho næstu daga Hjörvar Ólafsson skrifar 20. ágúst 2018 07:00 Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United. Vísir/Getty
Maurizio Sarri og Unai Emery, sem tóku við stjórnartaumunum hjá liðunum Chelsea og Arsenal í sumar, fengu miserfið próf í upphafi keppnistímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla. Á meðan Sarri fór með lærisveina sína hjá Chelsea til Huddersfield Town í fyrstu umferðinni og vann sannfærandi sigur fór Emery með pilta sína og atti kappi við ríkjandi meistara, Manchester City, og tapaði. Þessir nýliðar í deildinni leiddu saman hesta sína á Stamford Bridge á laugardaginn og úr varð fjörugur leikur þar sem Sarri hafði vinninginn. Munaði þar ansi miklu um að Sarri gat leyft sér þann munað að geyma Eden Hazard á varamannabekknum framan af leik og spilað honum út sem trompi þegar leið á leikinn. Hazard hafði ekki verið lengi inni á vellinum þegar hann lagði upp sigurmarkið sem Marcus Alonso skoraði. Eftir stendur að Chelsea er með fullt hús stiga á meðan Arsenal er enn að reyna að ná sínu fyrsta stigi í deildinni undir stjórn Emery. Eins og áður segir verður að virða Emery það til vorkunnar að próf hans í frumrauninni var mun þyngra og það var lítið sem skildi liðin að í þessum leik. Matteo Guendouzi, franski miðvallarleikmaðurinn, var mun öflugri í þessum leik en gegn Manchester City og ýmis fleiri jákvæð teikn eru á lofti hjá Arsenal. Hjá Chelsea hefur Jorginho aðstoðað Sarri við að innleiða leikstíl sinn hjá liðinu og flýtt því ferli að liðið geti með góðu móti skipt frá varnarsinnuðum leik undir stjórn Antonio Conte í leik þar sem rík áhersla er lögð á flæði í sóknarleiknum. Harry Kane rauf álög sín hvað það varðar að koma boltanum í net andstæðinga sinna í ágústmánuði þegar hann skoraði eitt marka Tottenham Hotspur í 3-1-sigri liðsins gegn Fulham. Tottenham Hotspur sem voru töluvert gagnrýndir fyrir að kaupa engan leikmann í félagaskiptaglugganum láta engan bilbug á sér finna enn sem komið er og hafa borið sigurorð í báðum leikjum sínum í deildinni til þessa. Fulham sem er nýliði í deildinni kostaði aftur á móti miklu til í leikmannakaupum sínum í sumar og var það félag sem eyddi mestu í þeim glugga er hins vegar án stiga eftir tvo leiki.Gylfi blómstrar í nýju hlutverki Gylfi Þór Sigurðsson átti afbragðs leik fyrir Everton sem vann nokkuð sannfærandi sigur gegn Southampton. Gylfi Þór nýtur sín afar vel í því hlutverki sem Marco Silva virðist ætla að fela honum í vetur, það er að leika fyrir aftan Cenk Tosun, framherja liðsins, og skapa færi fyrir Richarlison, Theo Walcott og aðra þá eldibranda sem koma inn á kantinn hjá liðinu. Gylfi Þór skapaði að vanda mikinn usla með föstum leikatriðum sínum og svo virðist sem Silva hafi lagt ríka áherslu á þann þátt leiksins á undirbúningstímabilinu í sumar. Það var eftir eitt slíkt sem Everton komst á bragðið í leiknum, en þar léku Leigton Baines, Morgan Schneiderlin og Theo Walcott laglega fléttu sem Walcott rak smiðshöggið á. Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp mark Burnley sem tapaði fyrir Watfrod með þremur mörkum gegn einu. Það verður líklega þungt yfir æfingu Manchester United í dag, en liðið tapaði fyrir Brighton með þremur mörkum gegn tveimur. José Mourinho mun líklega benda forráðamönnum liðsins á að hann hafi haft á réttu að standa þegar hann ræddi um mikilvægi þess að styrkja hjarta varnarinnar framan af degi og svo leita leiða til þess að lappa upp á samband hans við Paul Pogba síðdegis, en svo virðist sem afar stirt sé á milli þeirra félaganna. „Fjölmiðlar og álitsgjafar eru vanalega mjög iðnir við kolann í gagnrýni sinni á mig þegar ég gagnrýni frammistöðu einstakra leikmanna minna svo ég vil biðja þig vinsamlegast um að leiða mig ekki í þá átt. Ég ætla ekki að tala á neikvæðan hátt um leikmenn mína hér, en segi bara að við gerðum of mörg mistök og okkur var refsað fyrir þau. Stundum sleppur þú með skrekkinn eftir að hafa gert mistök, en það var ekki uppi á teningnum í þessum leik. Við fengum á okkur mark í öll þau skipti sem leikmönnum varð á í messunni. Við misstum svo niður sjálfsöryggið með hverjum mistökunum sem við gerðum og það sást á spilamennsku leikmanna þegar leið á leikinn,“ sagði Mourinho í samtali við enska fjölmiðla eftir leikinn. Öllu léttara verður yfir í bláa enda Manchester-borgar, en Manchester City rótburstaði Huddersfield Town, en þar lék Sergio Agüero og skoraði þrjú marka liðsins í 6-1-sigri. Ríkjandi meistarar ætla greinilega ekkert að slá af í titilvörn sinni. Þeir eru strax komnir á topp deildarinnar, en liðið hefur bestu markatöluna af þeim liðum sem hafa fullt hús stiga. Umferðinni lýkur í kvöld með leik Liverpool og Crystal Palace á Selhurst Park, en bæði lið báru sigurorð af mótherjum sínum í leikjunum í fyrstu umferðinni. Liverpool vann sannfærandi sigur á West Ham United á meðan Crystal Palace lagði liðsfélaga Arons Einars Gunnarssonar hjá Cardiff City að velli.
Birtist í Fréttablaðinu Fótbolti Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Sjá meira