Hinn seki leiddi lögreglu að líki FitBit-stúlkunnar Sylvía Hall skrifar 22. ágúst 2018 00:31 Mollie Tibbets er tvítug að aldri. Hún sást seinast þann 18. júlí í heimabæ sínum Brooklyn í Iowa. Lögreglan í Iowa
Hin tvítuga Mollie Tibbetts, sem saknað hafði verið frá 18. júlí, fannst látin á kornakri í gær eftir að maðurinn sem grunaður er um morðið á Tibbetts leiddi lögreglu að líkinu. Lögregluyfirvöld í Iowa höfðu leitað dag og nótt að Tibbetts, sem hvarf þegar hún fór út að hlaupa fyrir rúmum mánuði síðan. Þá notaðist alríkislögreglan við gögn úr FitBit heilsuúri Tibbetts til þess að reyna að komast að staðsetningu hennar. Það var ekki fyrr en lögregla fann myndband úr öryggismyndavélum í heimahúsi í bænum sem sýndi bíl elta unga konu á hlaupum að rannsakendur urðu einhvers vísari um hvarf stúlkunnar.Sjá einnig: Yfir 200 yfirheyrslur vegna mannshvarfs Myndbandið leiddi lögreglumenn að hinum 24 ára Cristhian Bahena Rivera, 24 ára gamals innflytjanda sem hefur verið ólöglega í landinu í allt að sjö ár, sem var ákærður fyrir að myrða stúlkuna. Á þriðjudag benti hann Rivera lögreglumönnum á staðsetningu líksins, sem fannst á kornakri undir hrúgu af laufblöðum. Hann hefur verið settur í gæsluvarðhald og ákærður fyrir morð. Á blaðamannafundi sem var haldinn vegna málsins sögðu lögregluyfirvöld að það væri óvíst hvers vegna Rivera hafi myrt Tibbetts. Hann hafði elt hana og af einhverri ástæðu ákveðið að ræna henni. Hún hafi hótað að hringja á lögreglu sem hafi reitt hann til reiði. Sjálfur segist hann ekki muna eftir atburðinum, hann hafi rankað við sér á gatnamótum í Poweshiek-sýslu og áttað sig á því að hann hafi sett stúlkuna í skottið, og þegar hann hafi opnað það hafi hún verið blóðug. Rannsakendur bíða nú niðurstöðu krufningar til þess að vita dánarorsök Tibbetts.
Tengdar fréttir Nota Fitbit-gögn við leit að tvítugri konu Yfirvöld í Iowa skoða nú gögn frá Fitbit og af samfélagsmiðlum vegna rannsóknar á mannshvarfi hinnar 20 ára gömlu Mollie Tibbets. 27. júlí 2018 10:04 Yfir 200 yfirheyrslur vegna mannshvarfs Yfir 200 yfirheyrslur hafa verið framkvæmdar í tengslum við hvarf Mollie Tibbets, tvítugrar stúlku sem hvarf í mánuðinum í bænum Brooklyn í Iowa. 31. júlí 2018 20:59 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Nota Fitbit-gögn við leit að tvítugri konu Yfirvöld í Iowa skoða nú gögn frá Fitbit og af samfélagsmiðlum vegna rannsóknar á mannshvarfi hinnar 20 ára gömlu Mollie Tibbets. 27. júlí 2018 10:04
Yfir 200 yfirheyrslur vegna mannshvarfs Yfir 200 yfirheyrslur hafa verið framkvæmdar í tengslum við hvarf Mollie Tibbets, tvítugrar stúlku sem hvarf í mánuðinum í bænum Brooklyn í Iowa. 31. júlí 2018 20:59