Sjáðu Selfyssinga í Haukatreyjum vinna FH með flautumarki Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. ágúst 2018 11:30 Guðni Ingvarsson skorar sigurmarkið.
Selfyssingar voru endurkomukóngarnir í Olís-deild karla á síðustu leiktíð en þetta unga lið Patreks Jóhannessonar kom sér upp úr hverri holunni á fætur annarri á móti bestu liðum deildarinnar og vann ótrúlega sigra. Selfossliðið elskar dramatíkina svo mikið að það bauð meira að segja upp á endurkomu og flautumark í æfingaleik í gær þegar að það vann eins marks sigur, 29-28, á FH á fyrsta leikdegi Hafnafjarðarmótsins á Ásvöllum. FH-ingar voru betri framan af og breyttu stöðunni úr 10-10 í 16-10 með góðum kafla í fyrri hálfleik og voru yfir í hálfleik, 17-11. En, án Hauks Þrastarsonar minnkuðu Selfyssingar muninn jafnt og þétt í seinni hálfleik. Staðan var 28-28 þegar að 20 sekúndur voru eftir og þá tók Patrekur Jóhannesson leikhlé. Selfoss fór í sókn og skoraði línumaðurinn Guðni Ingvarsson sigurmarkið um leið og flautan gall eftir fallega sendingu frá Hergeiri Grímssyni. Guðni fór á kostum í leiknum og skoraði níu mörk auk þess sem að hann tryggði Selfyssingum sigurinn í þessum skemmtilega og spennandi leik. Tapið var eins vont og það verður fyrir FH í æfingaleik því Selfyssingar mættu til leiks í hvítum búningum en FH átti heimaleikinn og þurftu strákarnir úr Mjólkurbænum því að spila í varabúningum Hauka, erkifjenda FH. Allan leikinn má sjá hér að neðan en hann var sýndur beint á Haukar TV á Youtube. Með því að spóla á 1:43:09 má sjá lokasókn Selfyssinga.
Íslenski handboltinn Tengdar fréttir Selfoss með dramatískan sigur gegn FH og Haukar höfðu betur gegn Val Haukar og Selfoss byrja Hafnarfjarðarmótið en leikið er á Ásvöllum í minningu séra Friðriks Friðikssonar sem hefði orðið 150 ára. 21. ágúst 2018 22:30 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira
Selfoss með dramatískan sigur gegn FH og Haukar höfðu betur gegn Val Haukar og Selfoss byrja Hafnarfjarðarmótið en leikið er á Ásvöllum í minningu séra Friðriks Friðikssonar sem hefði orðið 150 ára. 21. ágúst 2018 22:30