Freyr fann lítið fyrir stóru stundinni á Laugardalsvelli í dag, hún kiknaði í samanburði við stóru stundina hans í vikunni þegar hann eignaðist sitt þriðja barn.
Hamrén hafði aðeins 16 daga frá því hann var ráðinn landsliðsþjálfari til dagsins í dag þegar hópurinn fyrir stærsta leik í sögu Íslands í Þjóðadeildinni var kynntur. Svíinn þurfti því einkar mikið á aðstoð Freys að halda fyrir þetta val.
„Maður vill hafa þetta faglegt og vel ígrundað, og það hefur verið það. En þetta hefur gengið vel, þetta ferli,“ sagði Freyr við þá Kolbein Tuma Daðason og Tómas Þór Þórðarson í beinni útsendingu á Vísi í lok fundar í Laugardalnum.

„Ég er búinn að eiga samtöl við Kolbein áður en við völdum þennan hóp upp á stöðuna á honum núna. Þegar við fórum yfir hvernig honum líður, hvernig hnéð á honum er núna og hvað hann hefur náð að æfa mikið upp á síðkastið, það voru frábæru fréttirnar.“
Kolbeinn hefur ekki fengið að spila hjá Nantes þar sem hann er á sölulista hjá félaginu. Hann er ekki tilbúinn í að byrja leiki en gæti komið inn á og mögulega breytt leikjum undir lokin. Þá er teymið einnig að horfa til hans í næstu leikjum á eftir, í október og nóvember.
„Þegar Heimir velur lokahópinn fyrir HM, það er stuttu eftir Bandaríkjaferðina og Kolli þurfti að fara heim meiddur þaðan. Þannig að ef ég gef mér forsendur þá var ekki grundvöllur fyrir teymið að velja hann. En ég skil samt vangaveltur fólks.“
„Við trúum öll að hann skori þegar hann er inni á vellinum.“
Svissnesku fyrirliðarnir fá tækifærið

„Rúnar hefur aldrei verið í betra standi, segir hann, og það sem ég hef séð af honum núna þá lítur hann rosalega vel út.“
„Hann er kominn í nýtt hlutverk sem leiðtogi. Ég þjálfaði hann 2012 og ég hefði aldrei getað ímyndað mér hann sem fyrirliða. Mér líst rosa vel á standið á honum.“

„Guðlaugur Victor hefur verið lítið í kringum hópinn en spilað gríðarlega vel með félagsliði upp á síðkastið. Hann fær tækifæri núna og þarf að koma og sýna okkur það í verki að hann eigi þetta tækifæri skilið.“

Þurfti mikið að þrýsta á Ragnar að taka ákvörðun sína til baka?
„Ég held að lykillinn að því að Raggi hélt áfram er að ég þekki hann. Ef ég hefði hringt í hann daglega þá hefði hann klárlega hætt því hann hefði haldið að ég væri eitthvað bilaður.“
„Við áttum gott samtal og svo gaf ég honum bara tíma og Erik átti líka samtal við hann.“
„Miðvarðarparið það kemur bara í ljós, það er ekkert gefið í því að Ragnar og Kári séu að byrja. Erik er nýr þjálfari og hann er með ákveðna sín á hlutina.“
„En það sem við erum sammála um er að allir þeir miðverðir sem eru í hópnum núna eru hrikalega góðir og við eigum líka leikmenn fyrir utan hóp sem eru hrikalega góðir. Ef við erum vel settir einhvers staðar þá er það í miðverðinum,“ sagði Freyr Alexandersson.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.