Stjarnan og KA/Þór unnu Greifamótið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. ágúst 2018 12:43 KA/Þór fagnaði sigri mynd/ka.is
Stjarnan vann Norðlenska Greifamótið í handbolta sem haldið var á Akureyri um helgina. KA sigraði Akureyri í grannaslag um þriðja sætið. Grótta byrjaði betur í úrslitaleiknum en eftir fimm mínútur náðu Stjörnumenn að komast yfir og létu forystuna ekki frá sér aftur. Lokatölur í leiknum urðu 26-22. Egill Magnússon og Leó Snær Pétursson voru atkvæðamestir í liði Stjörnunnar með 9 og 7 mörk hvor. Hjá Gróttu var Jóhann Reynir Gunnlaugsson með 9 mörk og Magnús Öder gerði 7. Heimaliðin KA og Akureyri mættust í leiknum um þriðja sætið. Þar var allt í járnum fyrsta korterið en KA tók völdin í seinni hluta fyrri hálfleiks og fór með sex marka forystu í hálfleikinn. Akureyri reyndi nokkur áhlaup í seinni hálfleik en náði aldrei að ógna sigri KA neitt að viti, lokatölur 30-25. Áki Egilsnes var markahæstur á vellinum með 9 mörk fyrir KA. Áki var valinn besti leikmaður mótsins. Þessi lið mætast einmitt í fyrstu umferð Olís deildar karla í risa leik. ÍR vann HK í leiknum um fimmta sætið. Í kvennaflokki vann KA/Þór risa sigur á Aftureldingu, 23-10, og tryggði sér sigur í mótinu. Leikurinn var aðeins styttri en venja er, leikið var tvisvar sinnum 20 mínútur. KA/Þór vann alla þrjá leiki sína í mótinu og voru verðskuldaðir sigurvegarar mótsins. Upplýsingar um gang mála í leikjum og mótinu eru fengnar frá ka.is.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira