Karlmaður ákærður fyrir skotárásina í Fredericton Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. ágúst 2018 17:55 Íbúar í Fredericton minntust fórnarlamba árásarinnar í gær. Vísir/AP
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir að myrða fjóra í borginni Fredericton í Nýju Brúnsvík í Kanada í gærmorgun. Maðurinn heitir Matthew Vincent Raymond og er 48 ára. Hann var handtekinn á vettvangi árásarinnar, íbúð sinni í fjölbýlishúsi í Fredericton, eftir að tilkynnt var um að byssu hefði verið stungið út um glugga hússins og að tvö lík lægju í garðinum fyrir utan. Tveir af þeim lögreglumönnum sem mættu fyrstir á vettvang voru skotnir til bana. Þeir hétu Robert Costello og Sara Burns, bæði á fimmtugsaldri. Hinir tveir sem létust í árásinni voru íbúar fjölbýlishússins og hétu Donald Adam Robichaud, 42 ára, og Bobbie Lee Wright, 32 ára. Samkvæmt AP-fréttaveitunni áttu Robichaud og Wright í ástarsambandi.Our deepest condolences to the families of our fallen members 45-year-old Lawrence Robert Costello and 43-year-old Sara Mae Helen Burns and the other victims in this morning's shootings. pic.twitter.com/9TeWn5OqWx— Fredericton Police (@CityFredPolice) August 10, 2018 Atburðarás gærdagsins er enn nokkuð á huldu og hefur lögregla ekki skýrt nákvæmlega frá aðdraganda árásarinnar eða aðgerðum á vettvangi. Lögregla beindi því til íbúa í nágrenni við húsið að halda sig innandyra eftir að tilkynnt var um árásina.
Tengdar fréttir Íbúar Fredericton uggandi vegna mannskæðrar skotárásar Tveir lögregluþjónar eru meðal hinna látnu en ells eru fjórir látnir og einn er alvarlega særður. 10. ágúst 2018 17:52 Minnst fjórir látnir í skotárás í Kanada Minnst fjórir eru látnir í skotárás í borginni Fredericton í austurhluta Kanada. 10. ágúst 2018 12:37 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Sjá meira
Íbúar Fredericton uggandi vegna mannskæðrar skotárásar Tveir lögregluþjónar eru meðal hinna látnu en ells eru fjórir látnir og einn er alvarlega særður. 10. ágúst 2018 17:52
Minnst fjórir látnir í skotárás í Kanada Minnst fjórir eru látnir í skotárás í borginni Fredericton í austurhluta Kanada. 10. ágúst 2018 12:37