Ekkert til í því að Godin hafi notfært sér Man Utd Arnar Geir Halldórsson skrifar 15. ágúst 2018 12:30 Godin undirbýr sig fyrir stórleik gegn Real Madrid í kvöld vísir/getty
Varnarmaðurinn öflugi Diego Godin segir ekkert til í þeim sögum sem segja að hann, í samstarfi við umboðsmann sinn, hafi notfært sér áhuga frá Man Utd til að fá betri samning hjá Atletico Madrid.Godin var óvænt orðaður við Man Utd á lokadegi enska félagaskiptagluggans en ekkert varð úr því og í kjölfarið greindu fjölmiðlar frá því að þessi 32 ára gamli Úrugvæi væri búinn að gera nýjan og endurbættan samning við Atletico Madrid. Þessar fréttir eru hins vegar uppspuni frá rótum því Godin hefur ekki gert nýjan samning við spænska félagið. „Ég hef ekki framlengt samning minn. Það hafa borist tilboð annars staðar frá en ég tók strax ákvörðun um að halda áfram hér og fyrir því eru persónulegar ástæður,“ er haft eftir Godin. „Nú er ég bara að hugsa um úrslitaleikinn en það er ekki rétt að ég hafi skrifað undir nýjan samning. Ég sá þessar fréttir sem voru skrifaðar en ég veit ekki hvernig þær urðu til,“ segir Godin. Úrslitaleikurinn sem Godin talar um er leikur Atletico og Real Madrid í Tallinn, Eistlandi í kvöld en þar munu þessi nágrannalið berjast um Ofurbikar Evrópu. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsendingin klukkan 18:45.
Spænski boltinn Mest lesið Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Valdi HM yfir kærastann Sport „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Enski boltinn „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu Körfubolti Bergrós endaði númer sautján í heiminum: „Þýðir mikið fyrir mig“ Sport Varði skot mótherja með skónum sínum Körfubolti „Ég væri ekki að þessu nema það væri fyrir hana“ Sport Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó Fótbolti Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Enski boltinn Fleiri fréttir Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld Stefán Teitur lagði upp sigurmarkið María kom sænsku meisturunum í bobba en þær björguðu sér Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Diljá þurfti aðeins þrjár mínútur til að leggja upp mark Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold FIFA refsar Ísraelum en þó aðeins með sekt Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Freyr stýrði Brann inn í undanúrslit bikarsins Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM Sjá meira