Lögreglan skaut verslunarstjórann til bana Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2018 16:11 Eftir um þriggja klukkustunda umsátur gafst Atkins upp. Vísir/AP
Lögreglan í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur staðfest að það var skot úr byssu lögregluþjóns, ekki gíslatökumannsins, sem hæfði Malyda Corado. Hún var verslunarstjóri Trader Joe‘s og lét lífið þegar Gene Evin Atkins lenti í skotbardaga við tvo lögregluþjóna fyrir utan verslunina. Þegar hann var særður flúði hann þar inn og tók gísla. Corado var þá á leið úr versluninni. Áður hafði lögreglan sagt að Atkins hefði skotið Corado til bana en nú hefur annað komið í ljós. Atkins hafði skotið ömmu sína sjö sinnum og þvingað aðra konu upp í bíl sinn. Lögreglan veitti honum eftirför og klessti hann bíll sinn fyrir utan verslunina. Eftir um þriggja klukkustunda umsátur gafst Atkins upp. Fyrst handjárnaði hann þó sjálfan sig og gaf sig fram við lögreglu.Sjá einnig: Gíslatökumaðurinn í Los Angeles nafngreindurAP fréttaveitan hefur eftir lögreglustjóranum Michael Moore að lögregluþjónarnir hafi haft áhyggjur af því að Atkins myndi myrða fjölda fólks inn í versluninni. Því hafi þeir svarað skothríð hans þó vegfarendur hafi verið á svæðinu. Atkins skaut tveimur skotum að lögreglu þegar þeir svöruðu, særðu hann og felldu Corado.„Þetta er versta, versta ákvörðun sem nokkur lögregluþjónn getur þurft að taka,“ sagði Moore.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira