Argentísk fyrirsæta segist hafa varið tíma með Rúrik í Miami Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. júlí 2018 10:30 Bárbara Córdoba er fyrirsæta og sjónvarpskona frá Argentínu. Hún hitti Rúrik Gíslason í Miami á dögunum og segir þau hafa varið tíma saman þar. vísir
Argentíska fyrirsætan og sjónvarpskonan Bárbara Córdoba hitti Rúrik Gíslason, landsliðsmann í knattspyrnu, í Miami á dögunum. Córdoba segir í samtali við argentíska fjölmiðla að Rúrik hafi verið mjög indæll, þau hafi skipst á símanúmerum og hafi byrjað að senda hvort öðru skilaboð. Þau hafi farið út að borða og eytt saman síðdegi í borginni. Rúrik var í viðtali í Brennslunni á FM957 í morgun og var þar spurður út í argentísku fyrirsætuna. „Jú, ég hitti á hana. Hún fékk mynd af mér með sér. Ég held að þetta sé sprottið þannig að ég var í sundlauginni og hún fékk mynd af sér,“ sagði Rúrik. La modelo argentina Bárbara Córdoba estuvo con Rúrik Gíslasón en Miami La mendocina se cruzó con el futbolista de la Selección de Islandia en un hotel Según la argentina, el rubio vikingo de la camiseta número 19 es "súper agradable". Intercambiaron números de celulares y dice que se están mensajeando”Le dije que todas las chicas de Argentina lo aman, y que su popularidad es increíble, y se mostró sorprendido”. @rurikgislason A post shared by Pilar Smith (@pilusmith) on Jul 6, 2018 at 12:36pm PDTEf marka má argentíska miðilinn Clarín hefur Córdoba sagt aðeins nánar frá kynnum þeirra Rúriks. „Þetta var ansi tilviljanakennt að við skyldum hittast. Rúrik var þarna líka og við fórum að spjalla saman. Ég gat ekki setið á mér og bað hann um að við myndum gera sögu fyrir Instagram-reikninginn minn,“ segir Córdoba í samtali við Clarín. Hún lýsir Rúrik sem mjög vingjarnlegum og segir að hann hefði spurt hana hverju hann mætti alls ekki missa af í Miami, en Córdoba býr og starfar í borginni. Þá segir hún að hún hafi sagt Rúrik að allar argentískar stelpur elskuðu hann.Y siguen las charlas! Un chisme: @BarbieMuriel y @GislasonRurik organizaron salida nocturna a un famoso club. Pero de eso... no hay registros! pic.twitter.com/PQpVsRNCHb— Federico Croce (@FedericoCroce) July 4, 2018 „Hann varð hissa. „Af hverju elska þær mig svona mikið í Argentínu? Hvað gerðist?“ spurði hann mig,“ segir Córdoba. Córdoba segir síðan frá því að Rúrik hafi boðið henni og hópnum sem hún var með í partý. Þá hafi þau farið út að skemmta sér á klúbb í Miami. „Í gær byrjuðum við að senda hvort öðru skilaboð, við fórum að borða saman og eyddum síðdeginu svo saman,“ segir Córdoba. Eins og áður segir sagði Rúrik ekki margt um kynni þeirra Córdoba í Brennslunni í morgun en hann var einnig spurður að því hvort hann væri á lausu. Svaraði knattspyrnumaðurinn þeirri spurningu játandi.„Já, ég er á lausu. Það er svoleiðis.“Viðtalið í heild sinni má heyra hér í spilaranum hér fyrir neðan.
Brennslan Tengdar fréttir Strákarnir okkar og Jamie Foxx hittust á djamminu Leikmenn íslenska landsliðsins eru allir komnir í smá frí eftir heimsmeistaramótið í Rússlandi en liðið komst ekki upp úr sínum riðli. 2. júlí 2018 15:30 Rúrik í sjokki yfir allri athyglinni Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu og milljónamaður á Instragram, segist hafa fengið áfall þegar hann leit á símann sinn á meðan fylgjendurnir hrúguðust inn á Instagram-síðu hans. 2. júlí 2018 12:30 Rúrik orðinn vinsælasti Íslendingurinn á Instagram Knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason er orðinn vinsælasti Íslendingurinn á Instagram en hann fór fram úr aflraunamanninum Hafþóri Júlíusi Björnsson rétt í þessu. 2. júlí 2018 19:15 Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira
Strákarnir okkar og Jamie Foxx hittust á djamminu Leikmenn íslenska landsliðsins eru allir komnir í smá frí eftir heimsmeistaramótið í Rússlandi en liðið komst ekki upp úr sínum riðli. 2. júlí 2018 15:30
Rúrik í sjokki yfir allri athyglinni Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu og milljónamaður á Instragram, segist hafa fengið áfall þegar hann leit á símann sinn á meðan fylgjendurnir hrúguðust inn á Instagram-síðu hans. 2. júlí 2018 12:30
Rúrik orðinn vinsælasti Íslendingurinn á Instagram Knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason er orðinn vinsælasti Íslendingurinn á Instagram en hann fór fram úr aflraunamanninum Hafþóri Júlíusi Björnsson rétt í þessu. 2. júlí 2018 19:15