Breskur ráðherra segir af sér vegna kynferðislegra smáskilaboða Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. júlí 2018 21:51 Andrew Griffiths hefur setið á þingi fyrir breska Íhaldsflokkinn síðan árið 2010. Mynd/Breska þingið
Andrew Griffiths, ráðherra í viðskiptaráðuneyti Bretlands, hefur sagt af sér embætti vegna kynferðislegra smáskilaboða sem hann sendi tveimur konum. Greint er frá afsögn hans á vef breska dagblaðsins Mirror. Í yfirlýsingu sem Griffiths sendi blaðinu segir að hann skammist sín gríðarlega fyrir athæfið. Gjörðir hans hafi valdið eiginkonu hans og fjölskyldu ómældri streitu og þeim eigi hann „allt að þakka“. Þá kemur hann skömm sinni einnig á framfæri við forsætisráðherra Bretlands, Theresu May, og ríkisstjórn hennar. Hann segist enn fremur ekkert eiga sér til málsbóta og hyggst leita sér hjálpar. Fyrstu fréttir bárust af málinu á laugardagskvöld en Griffiths sagði þó formlega af sér á föstudagskvöld, að því er fram kemur í yfirlýsingu hans. Hann hefur auk þess gefið sig fram við siðanefnd breska Íhaldsflokksins. Samkvæmt frétt Mirror verður innihald smáskilaboðanna birt í sunnudagsblaðinu. Blaðamaður BBC hefur heimildir fyrir því að skilaboðin hafi verið afar dónaleg. Griffiths hefur setið á þingi fyrir flokkinn síðan árið 2010. Honum og May er vel til vina en hann gegndi stöðu starfsmannastjóra hennar er hún sat í stjórnarandstöðu. Griffiths er auk þess tiltölulega nýbakaður faðir en hann og eiginkona hans, Kate, eignuðust stúlku í apríl síðastliðnum.
MeToo Bretland Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Sjá meira