Indverskur auðkýfingur sækir um pólitískt hæli á Bretlandi Birgir Olgeirsson skrifar 10. júní 2018 23:42 Nirav Modi er sakaður um milljarðasvik í heimalandinu en segist sæta pólitískum ofsóknum. Vísir/Getty
Indverski auðkýfingurinn Nirav Modi hefur sótt um pólitískt hæli á Bretlandseyjum. Greint er frá þessu á vef Financial Times en milljarðamæringurinn indverski er til rannsóknar í heimalandi sínu þar sem hann er sakaður um fjársvik sem varða um tvo milljarða dala, eða því sem nemur um 211 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Financial Times hefur þetta eftir embættismönnum bæði á Indlandi og Bretlandi.Fjallað er um málið á vef fréttaveitu Reuters sem gerði tilraun til að ná tali af Nirav Modi án árangurs. Forsvarsmenn ríkisbankans Punjab National Bank, sem er næst stærsti ríkisrekni banki Indlands, halda því fram að tvö skartgripaveldi, sem Modi og frændi hans Mehul Choksi leiða, hafa svikið um 2,2 milljarða dala úr bankanum. Eru þeir sagðir hafa gert það með því að hækka heimildir sínar með fölsuðum ábyrgðum sem lagðar voru fyrir starfsfólk útibúa Punjab National Bank á erlendri grundu. Financial Times segir Nirav Modi í London þar sem hann hefur sótt um hæli en hann telur sig sæta pólitískum ofsóknum í heimalandi sínu.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira