Pattstaða um myndun meirihluta í Kópavogi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. júní 2018 16:00 Vísir
Óeining meðal bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi hefur gert það að verkum að pattstaða er komin upp sem tefur fyrir myndun meirihluta í bænum. Enn hefur ekki verið boðað til formlegra viðræðna í Kópavogi. Fram hefur komið í fjölmiðlum að þremur bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, þeim Margréti Friðriksdóttur, Karen Elísabetu Halldórsdóttur og Guðmundi Gísla Geirdal, hugnist ekki að mynda meirihluta með BF Viðreisn. Það hafi komið mörgum í opna skjöldu, meðal annars bæjarstjóranum Ármanni Kr. Ólafssyni, samkvæmt heimildum fréttastofu. Bæjarfulltrúar flokksins hafa ýmist ekki viljað tjá sig við fjölmiðla eða ekki hefur í þá náðst. Ragnheiður Dagsdóttir, formaður stjórnar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, segir ráðið hafa fundað með bæjarfulltrúum á þriðjudag. Fulltrúaráðið hvetji fulltrúa flokksins, sem er langstærsti flokkurinn í bæjarstjórn Kópavogs, til að hefja meirihlutaviðræður hið fyrsta. „Við leggjum mikla áherslu á það að bæjarfulltrúarnir vinni þétt saman og þeir vinni markvisst að því að mynda nýjan meirihluta og þeim skilaboðum hefur að sjálfsögðu verið komið til oddvita og bæjarfulltrúa,” sagði Ragnheiður í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. „Við höfum rætt þetta mjög breytt, við höfum rætt landslagið heilt yfir og stjórn fulltrúaráðsins hefur ekki ályktað til bæjarfulltrúa um neinn ákveðinn flokk,” segir Ragnheiður, spurð hvort fulltrúaráðinu hugnist að flokkurinn leiti til annarra flokka en BF Viðreisnar um myndun meirihluta. Samkvæmt heimildum fréttastofu er nokkur titringur innan Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi vegna afstöðu bæjarfulltrúanna þriggja sem vilja ekki fara í meirihlutasamstarf með BF Viðreisn. Aðspurð kveðst Ragnheiður ekki vita hvaða ástæður liggja þar að baki.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira