Vardar sýnir Aroni Rafni áhuga Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. júní 2018 14:30 Aron Rafn Eðvarðsson er með nokkur tilboð undir höndunum. vísir
Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð í höndunum frá þýsku og austurrísku liði, samkvæmt heimildum Vísis. Þá hefur franskt lið sýnt honum mikinn áhuga auk þess sem að þrjú lið í Olís-deildinni hér heima vilja fá hann í sínar raðir, samkvæmt heimildum Vísis. Aron Rafn er samningslaus en samningur hans við Íslandsmeistara ÍBV rann út 1. júní. Markvörðurinn magnaði var í miklu stuði eftir áramót og stóð uppi sem deildarmeistari, bikarmeistari og Íslandsmeistari en hann var einnig útnefndur besti leikmaður úrslitakeppninnar. Frammistaða hans var slík að makedónska stórveldið RK Vardar í Skopje hefur sýnt honum áhuga og beðið um frekari upplýsingar um markvörðinn, samkvæmt heimildum Vísis. Ekkert er þó komið af stað milli Arons og Vardar en það mál er allt á byrjunarstigi og óljóst hversu mikill áhugi Vardar-manna er. RK Vardar er eitt af stórveldunum í evrópskum handbolta en liðið fór í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra og komst í undanúrslitin aftur á síðustu leiktíð. Liðið hefur tólf sinnum unnið úrvalsdeiildina í Makedóníu, þar af fjögur síðustu ár og fimm sinnum á síðustu sex árum. Aron Rafn er þessa dagana við æfingar hjá íslenska landsliðinu sem á leik á móti Litháen í umspili um sæti á HM 2019 á föstudaginn. Seinni leikurinn fer svo fram í Laugardalshöllinni 13. júní en Aron er að reyna að vinna sér aftur inn sætið sem hann missti í byrjun janúar.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira