200 tóku þátt í maraþonboðhlaupi til styrktar Atla og fjölskyldu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 8. júní 2018 09:00 Atli Örn Snorrason greindist með heilaæxli í lok árs 2017. Hann og Hrafnhildur kona hans áttu tvö ung börn og það þriðja á leiðinni þegar fótunum var skyndilega kippt undan þeim Mynd/Riddarar Rósu „
Við erum algerlega orðlaus yfir öllum sem mættu og styrktu Atla og fjölskyldu,“ segja skipuleggjendur maraþonboðhlaupsins sem fór fram á miðvikudag á Ísafirði. Um 200 manns mættu í þetta góðgerðarhlaup þar sem þátttakendur ýmist gengu eða hlupu. Í ár var safnað fyrir Atla Erni Snorrasyni og fjölskyldu hans en það er hlaupahópurinn Riddarar Rósu á Ísafirði sem skipulagði viðburðinn. „Atli Örn Snorrason greindist með heilaæxli í lok árs 2017. Hann og Hrafnhildur kona hans áttu tvö ung börn og það þriðja á leiðinni þegar fótunum var skyndilega kippt undan þeim og Atli greinist með alvarlegt heilaæxli. Atli hefur gengist undir margar og erfiðar meðferðir sem reynt hefur mikið á hann og fjölskylduna, líkamlega, andlega og fjárhagslega. Atli hefur verið óvinnufær frá greiningu og Hrafnhildur heima með ung börn,“ skrifuðu skipuleggjendur um söfnunina. Hlaupinn var þriggja kílómetra hringur og gátu verið einn til sjö þátttakendur í hverju liði. Heildarvegalengdin sem þurfti að ganga eða hlaupa er 21 kílómetri. Veðrið á Ísafirði var yndislegt þennan dag og var frábær stemning í hópnum. „Viðburðurinn gekk mjög vel og hefur aldrei safnast jafn mikið,“ segir Hólmfríður Vala Svavarsdóttir ein af skipuleggjendunum í samtali við Vísi. „Ég vil bara undirstrika þakklæti, velvilja og vinahug.“ Einnig hafa fjölmargir lagt inn á reikning Riddara Rósu og verður opið áfram fyrir styrki fyrir fjölskylduna til mánudagsins 11. Júní næstkomandi. Reikningsnúmerið er 556-14-602621 og kennitalan 500605-1700. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem Hólmfríður Vala tók í hlaupinu. Myndir/Hólmfríður Vala
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Fleiri fréttir Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Sjá meira