Áframhaldandi óvissa í ítölskum stjórnmálum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. maí 2018 11:18 Carlo Cottarelli ræðir við fjölmiðla eftir fundinn í dag. vísir/ap
Hlutabréfamarkaðir hafa tekið dýfu og skuldakostnaður Ítalíu hækkað vegna pattstöðu sem upp er komin í stjórnmálum í landinu. Carlo Cottarelli, sem tilnefndur hefur verið forsætsráðherra af Sergio Mattarella, forseta landsins, hitti forsetann í morgun til þess að ræða stöðuna og þann möguleika að mynda ríkisstjórn skipaða sérfræðingum. Cottarelli sagði hins vegar eftir fundinn með forsetanum að nýir möguleikar væru í stöðunni til að mynda pólitíska ríkisstjórn. Greint var frá því á sunnudag að Guiseppe Conte, forsætisráðherraefni ítalskra popúlista, hefði sagt af sér eftir að Mattarella hafanaði því að staðfesta fjármálaráðherra í ríkisstjórn. Þá var búist við því að boðað yrði til nýrra kosninga í haust en fjölmiðlar greina nú frá því að kosningar gætu farið fram strax í júlí. Þingkosningar fóru fram á Ítalíu í mars síðastliðnum. Popúlistaflokkurinn Fimm stjörnu hreyfingin og öfgahægriflokkurinn Bandalagið, sem báðir hafa efasemdir um Evrópusambandið, reyndu að mynda ríkisstjórn. Þær tilraunir fóru hins vegar út um þúfur eftir að forsetinn hafnaði tilnefningu á Paolo Savan í embætti fjármálaráðherra. Óttast er að sú óvissa sem uppi er í ítölskum stjórnmálum leiði til nýrrar fjármálakreppu í landinu en Ítalía er fjórða stærsta hagkerfið Evrópusambandsins.
Tengdar fréttir Stjórnarmyndun popúlista á Ítalíu farin út um þúfur Forseti Ítalíu hafnaði tilnefningu umdeilds evróskeptíkers í embætti fjármálaráðherra. 27. maí 2018 22:41 Forsætisráðherra tilnefndur til bráðabirgða á Ítalíu Uppnám er í ítölskum stjórnvöldum eftir að forsetinn stöðvaði í reynd stjórnarmyndun tveggja popúlískra flokka sem hafa efasemdir um evrusamstarfið. 28. maí 2018 17:12 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira
Stjórnarmyndun popúlista á Ítalíu farin út um þúfur Forseti Ítalíu hafnaði tilnefningu umdeilds evróskeptíkers í embætti fjármálaráðherra. 27. maí 2018 22:41
Forsætisráðherra tilnefndur til bráðabirgða á Ítalíu Uppnám er í ítölskum stjórnvöldum eftir að forsetinn stöðvaði í reynd stjórnarmyndun tveggja popúlískra flokka sem hafa efasemdir um evrusamstarfið. 28. maí 2018 17:12