Birta myndband af handtöku körfuboltamanns Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. maí 2018 07:00 Sterling Brown leikur körfubolta í NBA-deildinni vestanhafs. Skjáskot
Lögreglan í Milwaukee hefur birt myndband af handtöku körfuboltamannsins Sterling Brown. Handtakan, sem framkvæmd var í byrjun árs, vakti töluverða ólgu vestanhafs því Brown var skotinn með rafbyssu fyrir að hafa lagt í stæði fyrir hreyfihamlaða. Myndbandið, sem tekið var með myndavél á búningi lögreglumanns, má sjá hér að neðan. Fram til þessa hefur lögreglan þvertekið fyrir að birta hið 30 mínútna langa myndband. Í því sést hvernig Brown streitist ekki á móti handtökunni sem þó endar með því að lögreglumenn skjóta hann með rafbyssu. Lögreglustjórinn Alfonso Morales hefur beðist afsökunar fyrir hönd lögreglumannanna sem sendir voru á vettvang. Á blaðamannfundi sem haldinn var eftir birtingu myndbandsins viðurkenndi lögreglustjórinn að lögreglumennirnir hafi hagað sér með óábyrgum hætti. Þá þykir honum jafnframt miður að málin hafi þróast með þessum hætti. Sterling var handtekinn og dvaldi í fangaklefa um tíma. Hann var þó aldrei ákærður. Hann segist ætla að fara fram á skaðabætur vegna málsins. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Bandaríkin Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira