Segja að Whitney Houston hafi verið misnotuð sem barn Stefán Árni Pálsson skrifar 17. maí 2018 13:30 Houston lést árið 2012, þá aðeins 48 ára. vísir/getty
Heimildarmyndin Whitney verður heimsfrumsýnd þann 6.júlí næstkomandi en í henni er rætt ítarlega við fólk sem tengdist söngkonunni Whitney Houston. Houston fannst látin í baðkari á hóteli í Los Angeles árið 2012 en talið er að hún hafi látist af of stórum skammti fíkniefna. Þá aðeins 48 ára. Whitney Houston er talin vera ein allra besta söngkona allra tíma. Fram kemur í myndinni að Whitney Houston hafi verið kynferðislega misnotuð sem barn af frænku sinni Dee Dee Warwick. Sky greinir frá.Heimildarmyndin var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina og þar sakar hálfbróðir Houston, Gary Garland-Houston, náskyldan ættingja um að hafa misnotað söngkonuna í barnæsku. Í myndinni kemur einnig fram að Whitney Houston hafi aldrei sagt móður sinni frá misnotkuninni en Garland-Houston segir að hún hafi verið misnotuð á aldrinum sjö til níu ára en vildi ekki nefna ættingjann á nafn. Mary Jones, frænka Houston, nafngreinir aftur á móti Dee Dee Warwick í heimildarmyndinni og segist sjálf hafa verið misnotuð af henni. Dee Dee Warwick er yngri systir soulsöngkonunnar Dionne Warwick og voru þær frænkur Cissy Houston, móðir Whitney. Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira