Skoðun

Stígum stærri og róttækari græn skref í Reykjavík

Líf Magneudóttir skrifar
Loftslagsbreytingar af mannavöldum og áhrif þeirra eru eitt af stærstu og brýnustu verkefnum sem við stöndum frammi fyrir á komandi árum og áratugum. Áhrif þeirra á vistkerfi jarðarinnar geta valdið gríðarlegu og óafturkræfu tjóni í öllum löndum og hverri einustu borg. Líka á Íslandi og hér í Reykjavík.

Í loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar er stefnt að því að borgin verði kolefnishlutlaus árið 2040. En stefna og markmið eru ekki nóg: Við verðum að stíga miklu fastar til jarðar og taka stærri skref til að ná þessum markmiðum.

Borgarlína er góð - en ekki nóg

Eitt stærsta skrefið sem við getum stigið er að greiða veg vistvænna samgangna. Lagning borgarlínu er ein mikilvægasta forsenda þess, og því leggjum við í Vinstri grænum höfuðáherslu á að hefja lagningu hennar tafarlaust. En borgarlínan ein og sér dugar ekki til.

Við verðum að fjölga hjólastígum og aðgreina þá frá gangandi umferð því það hefur sýnt sig að þá hjóla fleiri og hjólreiðar verða öruggari. Við þurfum að efla strætó meðan við bíðum eftir borgarlínunni og með því að banna nagladekk getum við strax dregið úr svifryksmengun og bætt loftgæðin í borginni.

Reykjavík á líka að gera meira til þess að greiða fyrir rafbílavæðingu. Það þarf að koma fyrir hleðslustöðum við allar opinberar byggingar, í bílastæðahúsum og í íbúðargötum, og veita sérstakan stuðning við að koma upp hleðsluaðstöðu fyrir rafbíla við íbúðarhús.

Við þurfum líka að endurheimta náttúrugæði og stórefla kolefnisbindingu, rækta skóga og endurheimta votlendi.

Drögum úr neyslu og sóun

Rót vandans er óheft neysluhyggja og kannski hugsanaleysi um sótspor okkar. Við þurfum því að ráðast af krafti í markvissa fræðslu og vitundarvakningu um sótspor okkar og hvað við getum gert til að minnka það.

Með því að hvetja til matjurtaræktar og minni matarsóunar og með því að gera vegan fæði hærra undir í mötuneytum borgarinnar stuðlar borgin að neyslu sem skilur efitr sig minna sótspor. Vekjum fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að fara vel með okkar nánasta umhverfi og náttúruna og að vera ábyrgur neytandi.

Það á eftir að skila sér í betra og heilsusamlegra samfélagi. Fyrir því ætla ég beita mér af krafti í borgarstjórn á næsta kjörtímabili.

Setjum X við V á laugardaginn og tryggjum aukin lífgæði og enn betri borg fyrir okkur öll.

Líf Magneudóttir, Oddviti VG í borgarstjórnarkosningunum




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×