Menn sem voru handteknir á Starbucks fá einn dollara í skaðabætur Sylvía Hall skrifar 2. maí 2018 20:40 Starbucks hefur sætt gagnrýni fyrir að mismuna viðskiptavinum eftir kynþætti í kjölfar uppákomunnar. Vísir/AFP
Mennirnir tveir sem voru handteknir af lögreglumönnum á Starbucks-kaffihúsi á Fíladelfíu í síðasta mánuði hafa náð samkomulagi við yfirvöld í fylkinu um skaðabætur upp á einn dollara. Mennirnir, sem grunað var að hafa verið vísað út fyrir það eitt að vera svartir, segja samkomulagið táknrænt. Samkomulagið náðist gegn því að yfirvöld myndu setja á fót verkefni fyrir unga frumkvöðla í borginni og hefur borgarstjórinn lofað rúmum 20 milljónum króna í verkefnið. Verkefnið mun snúa að ungmennum í almenningsskólum borgarinnar og munu mennirnir tveir ekki þiggja neinn pening sem verður sett í verkefnið. Málið vakti mikla athygli fyrir þær sakir að mennirnir höfðu ekkert gert af sér á staðnum þegar þeir voru handteknir. Voru þeir sagðir vera á staðnum í leyfisleysi, en þeir voru að bíða eftir vini sínum þegar atvikið átti sér stað. Einnig hefur fyrirtækið boðið mönnunum skólastyrki sem fyrirtækið mun greiða. Starbucks hefur boðað að um átta þúsund kaffihúsum verði lokað 29. maí fyrir þjálfun starfsfólks í samskiptum við fólk af öllum kynþáttum.
Tengdar fréttir Biðjast afsökunar á að hafa sigað löggunni á svarta viðskiptavini Starfsmaður Starbucks hringdi á lögregluna þegar tveir blökkumenn sem biðu eftir vini sínum höfðu ekki pantað neitt. 15. apríl 2018 08:51 Starbucks lokar kaffihúsum til að þjálfa starfsmenn í samskiptum kynþátta Þjálfa á starfsfólk keðjunnar í því hvernig á að koma fram við viðskiptavini sína eftir að tveir svartir viðskiptavinir voru handteknir um helgina. 17. apríl 2018 18:45 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Sjá meira
Biðjast afsökunar á að hafa sigað löggunni á svarta viðskiptavini Starfsmaður Starbucks hringdi á lögregluna þegar tveir blökkumenn sem biðu eftir vini sínum höfðu ekki pantað neitt. 15. apríl 2018 08:51
Starbucks lokar kaffihúsum til að þjálfa starfsmenn í samskiptum kynþátta Þjálfa á starfsfólk keðjunnar í því hvernig á að koma fram við viðskiptavini sína eftir að tveir svartir viðskiptavinir voru handteknir um helgina. 17. apríl 2018 18:45