Vilhjálmur, lögmaður Guðmundar Spartakusar, var harðorður í garð íslenskra fjölmiðla þegar hann flutti athugasemdir við málflutning lögmanns Sigmundar Ernis í Hæstarétti í morgun.
Þá tók Vilhjálmur blaðamanninn Atla Má Gylfason, sem Guðmundur Spartakus hefur einnig stefnt fyrir meiðyrði, sérstaklega fyrir. Vilhjálmur sagði Atla Má hafa hrópað að sér spurningum að loknum degi í héraðsdómi og að Atli Már hafi við það tilefni verið nývaknaður og íklæddur stuttbuxum. Atli Már segir þessar lýsingar ekki réttar.
Ummælin um meint fíkniefnaviðskipti í Suður-Ameríku
Ummælin, sem Guðmundur Spartakus vildi dæmd dauð og ómerk, sneru að fullyrðingum um meint fíkniefnaviðskipti hans en ummælin birtust í frétt á vef Hringbrautar. Þar var meðal annars greint frá því að Guðmundur Spartakus væri fíkniefnasmyglari í Suður-Ameríku sem sigldi þar „undir fölsku vegabréfsflaggi.“Á sínum tíma var Sigmundur Ernir fyrst og fremst sýknaður á grundvelli þess að umfjöllun Hringbrautar byggði einkum á því sem fram kom í öðrum miðlum.

Sagði blaðamennsku ganga út á klikk
Báðir lögmenn fengu 30 mínútur hvor til að flytja mál sitt í Hæstarétti í dag. Í athugasemdum við málflutning Gunnars Inga Jóhannssonar, lögmanns Sigmundar Ernis, vandaði Vilhjálmur íslenskum fjölmiðlum ekki kveðjurnar.Hann gagnrýndi m.a. þá staðhæfingu að Hringbraut hefði enga hagsmuni af því að færa í stílinn í umræddri frétt og sagði fréttaflutninginn raunar snúast um peninga. Því til stuðnings sagði Vilhjálmur blaðamennsku í dag „ganga út á klikk“ og þess vegna hafi frétt Hringbrautar verið flutt með þessum hætti, til að reyna að auka tekjur stefnda, Sigmundar Ernis, og fjölmiðilsins Hringbrautar.
Sjá einnig: RÚV taldi ódýrara að greiða Guðmundi Spartakus 2,5 milljónir króna
Vilhjálmur svaraði einnig athugasemdum Gunnars Inga um fjarveru Guðmundar Spartakusar, en sá síðastnefndi mætti ekki til skýrslutöku í málinu. Vilhjálmur sagði það hafa verið val Guðmundar Spartakusar að gefa ekki skýrslu og að hann hafi ekkert meira um málið að segja. Utan þess hafi Guðmundur Spartakus engan áhuga á því að lenda í „hakkavél íslenskra fjölmiðla.“
Nývaknaður á stuttbuxum, með símann að vopni
Þá talaði Vilhjálmur um eigin reynslu af téðri hakkavél og sagði íslenska fjölmiðla iðulega ganga hart fram, mæta og taka myndir og halda málinu gangandi með þeim hætti. Vilhjálmur sagði í framhaldi af því að við meðferð málsins sem hér er til umræðu hafi blaðamaðurinn Atli Már Gylfason beðið á stuttbuxum, greinilega nývaknaður, fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur einhvern daginn með símann að vopni.Atli hafi svo elt Vilhjálm niður alla ganga héraðsdóms, fylgt honum út, hrópað að honum spurningar og birt efnið svo á netinu.

Þvertekur fyrir stuttbuxurnar og hrópin
Guðmundur Spartakus hefur einnig stefnt Atla Má fyrir meiðyrði er varða meint fíkniefnaumsvif þess fyrrnefnda og hvarf íslensks karlmanns, Friðriks Kristjánssonar, í Suður-Ameríku. Þá var Atli Már jafnframt viðstaddur málflutning í Hæstarétti í dag en hann tjáði sig um ummæli Vilhjálms í Facebook-færslu í morgun. Í færslunni þvertók Atli Már bæði fyrir að hafa verið á stuttbuxum og hrópað að Vilhjálmi við umrætt tilefni.„Villi Vill sagði í Hæstarétti Íslands að ég hefði elt hann á stuttbuxunum upp Laugaveginn og hrópað að honum spurningar. Hann horfir pirraður á mig reglulega. Ég hélt að dómurinn væri að fjalla um Sigmund Erni en ekki mig,“ skrifaði Atli Már.
„Namedrop í virtasta dómstigi landsins þökk sé...bíddu ætla að copy/paste-a nafnið hans...Vilhjálmi Vilhjálmssyni. PS. Ég var ekki á stuttbuxum...og ég hrópaði ekki!“
Mál Guðmundar Spartakusar á hendur Atla Má verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness fimmtudaginn 3. maí næstkomandi.
„Eiturbarón“ notaður til tengingar við Pablo Escobar
Að öðru leyti var málflutningur lögmanna áfrýjanda og stefnda í samræmi við það sem kom fram þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á sínum tíma. Vilhjálmur hélt því t.d. fram, eins og áður, að í frétt Hringbrautar hafi verið látið liggja að refsiverðri háttsemi Guðmundar Spartakusar. Þá var Vilhjálmur ósammála því að frétt Hringbrautar hafi verið efnislega sú sama og frétt RÚV, sem Hringbraut vísaði í, og sagði hann hlut Guðmundar Spartakusar gerðan margfalt verri í meðförum Hringbrautar en í frétt RÚV.Vilhjálmi þótti fyrirsögn Hringbrautar, „Íslenskur eiturbarón í S-Ameríku?“, auk þess gildishlaðin og ætluð til þess að skapa ákveðin hughrif og tengja Guðmund Spartakus við menn á borð við Pablo Escobar og El Chapo, þekkta suður- og miðameríska eiturlyfjabaróna.
Vilhjálmur gagnrýndi einnig vinnubrögð sem viðhöfð voru á Hringbraut og sagði ásetning Sigmundar Ernis til að meiða æru Guðmundar Spartakusar ótvíræðan.

Mannréttindadómstóll Evrópu standi vörð um fréttaflutninginn
Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður Sigmundar Ernis ítrekaði í málflutningi sínum að fréttir íslensku miðlanna um mál Guðmundar Spartakusar, þ. á m. frétt Hringbrautar, væru þýðingar á fréttum sem birtust í paragvæskum miðlum. Fullyrðing lögmanns Guðmundar Spartakusar um að fréttin á Hringbraut væri efnislega öðruvísi en aðrar fréttir íslensku miðlanna væru því rangar.Gunnar Ingi lagði einnig áherslu á að Mannréttindadómsstóll Evrópu hafi ítrekað staðið vörð um þann rétt blaðamanna að taka á móti upplýsingum og miðla þeim. Upplýsingar sem komu fram í frétt Hringbrautar hafi átt erindi við almenning.
Guðmundur Spartakus stefndi fjölmörgum blaðamönnum eftir umfjöllun um meint fíkniefnaviðskipti hans en eins og áður hefur komið fram byggðu íslenskir fjölmiðlar umfjöllun sína á fréttum paragvæskra fjölmiðla.
Í september síðastliðnum féllst Ríkisútvarpið, hvers fréttamenn voru á meðal hinna stefndu, á að greiða Guðmundi Spartakusi samtals 2,5 milljónir króna vegna málsins. Ríkisútvarpið neitaði fyrst um sinn að veita upplýsingar um sáttina en í nýlegum úrskurði var því gert skylt að afhenda Vísi umræddar upplýsingar.
Uppfært klukkan 17:12
Atli Már Gylfason blaðamaður kom eftirfarandi yfirlýsingu, vegna ummæla Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, á framfæri við fréttastofu á sjötta tímanum í dag.
„Þessi ummæli hins háttvirta lögmanns Vilhjálms Vilhjálmssonar vöktu mikla athygli mína í dag, sérstaklega þar sem þau voru mjög reyfarakennd og í engum takti við það sem í raun og veru gerðist, eins og myndbandið sýnir. Það að nefna mig sem skýringu fyrir því að Guðmundur Spartakus hafi ákveðið að gefa ekki skýrslu fyrir dómi, að ég hafi elt hann á stuttbuxunum um ganga Héraðsdóms Reykjavíkur er einfaldlega rangt. Þó svo að myndbandið staðfesti nú ekki að ég hafi verið í gallabuxum get ég fullyrt það að ég er ekki þannig úr garði gerður að ég mæti á stuttbuxum í héraðsdóm.“