Tíu hafa látist í mótmælum í Níkaragva Sylvía Hall skrifar 21. apríl 2018 10:14 Mótmælendur segja óeirðalögreglu hafa átt upptökin að ofbeldisfullum aðgerðum. Vísir/AFP
Tíu hafa látist í hörðum mótmælum í Níkaragva vegna breytinga stjórnvalda á almannatryggingakerfinu þar í landi. Mótmælin eru þau mannskæðustu þar í landi frá því að forsetinn Daniel Ortega tók við embætti árið 2007. Mótmælin hófust á miðvikudag í höfuðborginni Managua þegar lífeyrisþegar komu saman á götum borgarinnar til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum sem fela í sér skerðingu á ellilífeyri og hækkun á iðgjöldum launþega. Á fimmtudag bættust námsmenn og vinnandi fólk í hópinn og færðist aukin harka í mótmælin, en um hundrað manns hafa slasast. Talið er að námsmenn séu leiðandi afl í mótmælunum. Frá því á miðvikudag hefur verið lokað fyrir útsendingar þriggja sjónvarpsstöðva sem sýndu beint frá mótmælunum og hafa þátttakendur sagt óeirðalögregluna hafa átt upptökin að ofbeldisfullum aðgerðum. Rosario Murillo, varaforseti landsins og eiginkona forsetans, hefur líkt mótmælendum við vampírur sem leitast eftir blóði í von um að styrkja málstað sinn. Ríkisstjórnin þar í landi hefur sagt mótmælendur hafa kveikt í opinberum byggingum og skapað óeirðir víða í landinu í kjölfar mótmælanna, sem ekki sér fyrir endann á.
Níkaragva Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Sjö ára dómur Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Fleiri fréttir Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Sjá meira