Myndbandaveitan Youtube segist hafa fjarlægt rúmlega 8,3 milljónir myndbanda af vefsíðunni á þriggja mánaða tímabili í fyrra. Youtube hefur sætt gagnrýni síðustu misseri fyrir að taka ekki harðar á ofbeldis- og hatursfullum myndböndum á síðunni.
Stjórnendur síðunnar hafa nú sent frá sér skýrslu þar sem aðgerðir Youtube á síðasta ársfjórungi ársins 2017 eru reifaðar. Þar segja þeir meðal annars að þessi 8 milljón myndbönd sem fjarlægð voru á tímabilinu séu aðeins örlítið brot af öllum þeim myndböndunum sem hlaðið var upp á Youtube frá októbermánuði til ársloka í fyrra. Flest hinna fjarlægðu myndbanda hafi verið afrit af öðrum myndböndum eða innihaldið klámfengið efni.
Youtube segir að öryggiskerfi síðunnar hafi í flestum tilfellum sjálft áttað sig á því að um óæskilegt efni væri að ræða. Því hafi um 76% allra fyrrnefndra myndbandanna verið eytt áður en þau fengu eitt einasta áhorf.
Í kjölfar skotárásarinnar í Parkland í Flórída í upphafi árs fóru mörg samsæriskenningamyndbönd á flug á Youtube, eitt þeirra rataði jafnvel á lista yfir vinsælustu myndböndin þann daginn. Þó svo að notendareglur Youtube kveði ekki á um bann við falsupplýsingum eða samsæriskenningum segjast stjórnendur síðunnar ætla að hengja hlekk á vefalfræðiorðabókina Wikipedia við „augljósustu samsæriskenningarnar“ á síðunni, eins og það er orðað á vef Guardian.
Google, sem er í eigu sama móðurfyrirtækis og Youtube, hefur heitið því að ráða þúsundir einstaklinga til að vakta efni sem hlaðið er upp á myndbandaveituna. Vonast fyrirtækið til að ritskoðunarstarfsmenn verði um 10 þúsund talsins fyrir lok þessa árs.
Fjarlægðu 8 milljón myndbönd á þremur mánuðum
Stefán Ó. Jónsson skrifar

Mest lesið

„Alltaf leiðindamál að lenda í svona“
Viðskipti erlent


Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna
Viðskipti innlent

Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón
Viðskipti innlent

„Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“
Viðskipti innlent

Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum
Viðskipti erlent

Að sleikja narsisstann upp í vinnunni
Atvinnulíf

Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi
Viðskipti innlent

Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári
Viðskipti innlent
