Siumut-flokkurinn á Grænlandi leggur til að slakað verði á aðgangskröfum í kennaranám.
Frambjóðanda flokksins, Siunni Johansen, segir mikilvægara að kennaranemar geti talað grænlensku en að þeir hafi ákveðið meðaltal einkunna úr framhaldsskóla.
Johansen bendir á að hinn kosturinn sé að fá kennara sem ekki tala grænlensku. Þeir muni kenna börnunum á framandi tungu.
