Opna markað fyrir kaup og sölu á notaðri barnavöru Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 8. apríl 2018 07:00 Guðríður Gunnlaugsdóttir og Ása Regins opna markað fyrir barnavöru í næsta mánuði. Úr einkasafni
Guðríður Gunnlaugsdóttir er ein þeirra sem stendur á bak við Barnaloppuna sem opnar hér á landi í maí. Hún segir að Barnaloppan sé fyrsti stórmarkaðurinn á Íslandi sem barnafjölskyldur geta nýtt sér til þess að kaupa og selja notaða barnavöru. Hún segir að hugmyndin á bak við þetta sé dásamlegt fyrirbæri. „Í desember síðastliðnum fluttist ég, ásamt manninum mínum og tveimur dætrum, aftur heim til Íslands eftir tæp sjö ár í Danmörku. Á þessum árum var ég tíður gestur á hinum ýmsu mörkuðum og var því ekki lengi að detta inn í dönsku „loppe“ stemmninguna sem gekk svolítið út á það að finna allskonar gull og gersemar á „skid og ingenting“ Alltaf fannst mér þó skemmtilegast að finna eitthvað fallegt og nytsamlegt fyrir stelpurnar mínar, og var það því algjör himnasending fyrir mig að uppgötva dönsku Barnaloppuna.“Draumur að rætast Á danska Børneloppen markaðnum er hægt að kaupa fallegar barnavörur og einnig selja sínar notuðu vörur án þess að vera sjálfur á staðnum. „Ég var algjörlega heilluð af hugmyndinni og hugsaði að þetta væri eitthvað sem ég gæti hugsað mér að taka með mér heim til Íslands og leyfa þannig Íslendingum að njóta góðs af Barnaloppunni með mér, og auka „loppe“ stemmninguna á Íslandi í leiðinni.“ Guðríður er mikill aðdáandi markaðra og hafði lengi verið með þá hugsun að opna verslun með notaðar vörur. „Það má því með sanni segja að draumurinn minn sé að rætast og tel ég það algjör forréttindi að fá að starfa við það sem mér finnst hvað skemmtilegast.”Guðríður ásamt fjölskyldu sinni.Úr einkasafniVaran öðlast nýtt líf hjá nýrri fjölskyldu Guðríður segir að sér hafi fundist frábært að geta gert eitthvað til að koma í veg fyrir þessa svokölluðu kaupa og henda menningu. „Það sem er svo sniðugt við Barnaloppuna er að við erum að þjónusta tvo viðskiptavinahópa, annars vegar þá sem hafa áhuga á að kaupa notaða barnavöru og hins vegar þá sem vilja selja sínar en hafa kannski ekki endilega tíma né áhuga á að standa í sölunni sjálfir. Okkar markmið er því að auðvelda kaup og sölu hliðina í þessu samhengi. Barnaloppan skapar greiðari aðgang að notaðri barnavöru og stuðlar í leiðinni að aukinni endurnýtingu, sem mér finnst náttúrulega bara frábært. Með því að draga úr neyslu og nýta það sem til er verður hver barnavara verðmætari og er það bæði umhverfis- og samfélagslega rétt. Mikið af góðum varningi fær oftar en ekki allt of stuttan líftíma í stað þess að öðlast nýtt líf hjá nýrri fjölskyldu.“ Aldursbilið er þannig að barnavörurnar verða fyrir börn frá fæðingu og upp í táningsaldur. Allar vörurnar í búðinni eru verðmerktar og þeir sem ætla að selja vörur geta fengið ráðleggingar um framsetningu á vörum til að auka söluna. „Í Barnaloppunni er bæði hægt að kaupa og selja notaða barnavöru, allt frá fötum og leikföngum til barnavagna og bílstóla. Hugmyndin er því að skapa greiðari aðgang að notaðri barnavöru og auðvelda söluferlið í leiðinni. Sem seljandi leigir þú bás í eina viku að lágmarki og kemur vörunum þínum fyrir í básnum á fyrsta degi leigutímabils. Barnaloppan sér svo um að selja vörurnar og þjónusta viðskiptavini verslunarinnar. Á meðan á leigutíma stendur er hægt að fylgjast með sölunni rafrænt að heiman, og í lok leigutímabils er söluhagnaðurinn svo greiddur út til viðskiptavina. En þetta er einmitt það sem er einstakt við Barnaloppuna, því oft getur það reynst tímafrekt og mikil fyrirhöfn að selja einstaka vörur, til dæmis í gegnum netsíður. Einnig munum við gefa básaleigjendum ýmis góð ráð til þess að auka söluna, til dæmis hvað varðar uppsetningu í básum og fleira.“Ása býr með fjölskyldu sinni á Ítalíu.Úr einkasafniStefna á að halda viðburði tengda börnum Ætla þær að hafa leikhorn fyrir börn og kósý sófahorn á markaðnum til að gera hann fjölskylduvænan. „Okkur finnst mikilvægt að bjóða alla fjölskylduna velkomna í Barnaloppuna. Okkur finnst ekki síður mikilvægt að að skapa umhverfi sem er jákvætt og skemmtilegt, þar sem ungir jafnt sem aldnir geta átt notalega stund. Hugmyndin er einnig að vera með vikulega viðburði í versluninni sem tengjast börnum, og munum við auglýsa slíka viðburði með góðum fyrirvara.“ Sú sem er með Guðríði í þessu verkefni er Ása Regins. Ása býr á Ítalíu ásamt Emil Hallfreðssyni eiginmanni sínum og tveimur börnum. „Að flakka svona á milli landa kallar oft á „mjög óvænt“ fatakaup; Snjógallar um jólin eða pollagalli fyrir Verslunarmannahelgina, sem síðan hangir inni í skáp á Íslandi á meðan við sólum okkur á Ítalíu - og er svo orðið of lítið næst þegar á að nota. Ég hef bölvað þessu öll þessi ár, bæði vegna að þess að þetta kostar mig ansi margar krónur en fyrst og fremst svíður þetta umhverfisins vegna,“ segir Ása um verkefnið. Selja ekki föt með blettum eða götum Vinkonurnar hafa fengið húsnæði fyrir markaðinn og mun hann opna í Skeifunni 11d í Reykjavík í næsta mánuði. „Heimasíðan okkar, www.barnaloppan.is, er alveg að verða klár en við erum eins og er að vinna í því að bæta við upplýsingum þar inn, en gott að taka fram að í gegnum heimasíðuna verður meðal annars hægt að panta bása mjög fljótlega. Mæli þó með því að þið kíkið á heimasíðuna og skráið ykkur á póstlistann, því við munum senda út fréttatilkynningu innan skamms um góð opnunartilboð og fleira skemmtilegt. Við erum mjög dugleg að setja inn allskonar skemmtileg innlegg á Instagram og Facebook bæði frá uppbyggingarferlinu sem er í fullum gangi núna, og einnig praktískar upplýsingar varðandi hvernig „loppan“ gengur fyrir sig og svo framvegis.“ Hægt er að fylgjast með á Facebook og Instagram, undir nafninu Barnaloppan. Markaðurin sjálfur opnar svo í maí. „Það má selja hvað sem er sem tengist börnum, ekki bundið við nein merki eða neitt svoleiðis. Við gerum þó kröfur um að vörur séu vel með farnar, til dæmis að flíkur séu án bletta og gata.“
Börn og uppeldi Viðtal Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira