Virkasta eldfjall Evrópu að skríða út í sjó Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2018 09:12 Etna er á austurhluta Sikileyjar. Fjallið skríður nú fram um 14 millímetra á ári að meðaltali. Vísir/AFP
Eldfjallið Etna á Sikiley er hægt og bítandi að skríða í átt að hafinu. Vísindamenn vara við því að hreyfingin geti leitt til aukinnar virkni í eldfjallinu sem er þegar það virkasta í Evrópu. GPS-mælar í kringum fjallið sem hafa mælt hreyfingu þess síðustu ellefu árin sýna að Etna skríður um 14 millímetra á ári í austsuðaustur í áttina að bænum Giarre á austurströnd Sikileyjar, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Talið er að þetta sé í fyrsta skipti sem vísindamenn hafa fundið bein merki um slíka hreyfingu eldfjalls. Rannsóknir á kulnuðum eldfjöllum hafa bent til þess að miklar hamfaraskriður geti farið af stað þegar þau renna til. Slíkt er hins vegar sjaldgæft og það gæti tekið Etnu hundruð eða þúsundir ára að komast á það stig þar sem það gæti verið raunveruleg hætta. „Ég myndi segja að það sé engin ástæða til að óttast eins og er en þetta er eitthvað sem við þurfum að fylgjast með, sérstaklega til að sjá hvort að hreyfingin sé að verða hraðari,“ segir John Murray, jarðfræðingur við Opna háskólann sem hefur rannsakað Etnu í næstum því hálfa öld.
Vísindi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira