Áfram blæs í dag Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. mars 2018 07:02 Vindaspá fyrir daginn í dag. Veðurstofa Íslands „
Það blés sums staðar hressilega á landinu í gær og enn blæs í dag, þó dregið hafi úr,“ segir veðurfræðingur Veðurstofunnar þennan morguninn. Gera má ráð fyrir því að eftir hádegi verði austan-strekkingur nokkuð víða, en hvassviðri með suðurströndinni. Á Norðurlandi ætti að haldast þurrt en aðrir landshlutar mega búast við úrkomu á einhverjum tímapunkti í dag ef marka má spákortin. Hitinn verður yfirleitt 1 til 7 stig yfir daginn, hlýjast suðvestanlands. Það mun svo bæta í vind á morgun og er útlit fyrir allhvassan eða hvassan vind af austri, en storm eða rok í Öræfum og einnig syðst á landinu. Ætla má að vindhraðinn verði víða á bilinu 13 til 20 m/s og allt að 20 til 25 m/s á Suðausturlandi. Gul viðvörun er því í gildi fyrir Suðurland til hádegis og fyrir miðhálendið til klukkan 10. Austanvert landið fær rigningu eða slyddu á morgun, en vestanmegin verður þurrt að kalla. Á skírdag lægir svo og þá er útlit fyrir hið rólegasta veður á landinu. Þó verður „mjög kalt í veðri“ á páskadag og annan í páskum.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag:Austan og norðaustan 13-20 m/s, en 20-25 á Suðausturlandi og einnig syðst á landinu. Rigning eða slydda suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á fimmtudag (skírdagur):Hæg austlæg eða breytileg átt, en norðaustan 8-13 syðst á landinu. Víða léttskýjað, en dálítil snjókoma eða slydda austanlands. Hiti breytist lítið. Á föstudag (föstudagurinn langi):Hæg breytileg átt. Skúrir eða él í flestum landshlutum og hiti 0 til 5 stig. Á laugardag:Gengur í norðanátt með snjókomu eða éljum, einkum um landið norðanvert. Kólnandi veður. Á sunnudag (páskadagur) og mánudag (annar í páskum):Útlit fyrir norðanátt með með éljum. Mjög kalt í veðri.
Veður Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fleiri fréttir Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sjá meira