Svíar ræða við N-Kóreu um lausn þriggja Bandaríkjamanna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. mars 2018 23:30 Embættismenn ríkjanna tveggja funduðu um helgina Mynd/Sænska utanríkisráðuneytið
Sænsk yfirvöld koma nú að samningaviðræðum þess efnis að þremur bandarískum ríkisborgurum verði sleppt úr haldi í Norður-Kóreu. Utanríkisráðherra Norður-Kóreu var staddur í Stokkhólmi um helgina.Ri Young Ho hefur undanfarna daga fundað með sænskum kollega sínum, utanríkisráðherranum Margot Wallström. Í frétt á vef sænska utanríkisráðuneytisins segir að viðræður ráðherranna tveggja hafi að mestu snúist um stöðu mála á Kóreu-skaganum.CNN hefur hins vegareftir heimildarmönnum sínum að Svíar hafi þrýst mjög á að lausn myndi finnast í málum fanganna þriggja á fundum ráðheranna tveggja.Tveir þeirra voru fangelsaðir á síðasta ári, en sá þriðji árið 2015. Tveir þeirra störfuðu við háskólann í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, og voru þeir handteknir fyrir fjandsamlegar gjörðir í garð Norður-Kóreu, sá þriðji var handtekinn fyrir njósnir.Málið hefur að sögn heimildarmanna CNN verið rætt síðustu mánuði á fundum embættismanna ríkjanna tveggja, en bandarísk yfirvöld eru sögð leggja mikla áherslu á að þremenningarnir losni úr haldi.Svíar hafa undanfarna áratugi starfað sem milliliðir í samskiptum annarra vestrænna ríkja við Norður-Kóreu, en Svíar hafa starfrækt sendiráð í höfuðborg Norður-Kóreu, lengst allra vestrænna ríkja.
Norður-Kórea Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Erlent Fleiri fréttir Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Sjá meira