Neyðarástand á Srí Lanka vegna átaka trúarhópa Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 7. mars 2018 06:00 Lögreglumaður á Srí Lanka. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/epa
Yfirvöld á Srí Lanka lýstu í gær yfir tíu daga neyðarástandi þar í landi í von um að hægt verði að stöðva átök sem geisað hafa á milli búddista og múslima, sem eru í minnihluta í landinu, undanfarið. Mikil togstreita hefur verið á milli hópanna undanfarið ár. Búddistar hafa á síðustu mánuðum sakað múslima þar í landi um að snúa fólki til íslamstrúar gegn vilja sínum. Aukinheldur hafa þeir sagt múslima skemma fornminjar sem tengjast búddisma. Þá hafa öfgabúddistar jafnframt mótmælt því harðlega að flóttamenn af þjóðflokki Róhingja, sem eru múslimar á flótta úr Mjanmar þar sem meirihluti íbúa er búddistar, hreiðri um sig á Srí Lanka. Átökin sem um ræðir hófust fyrir alvöru á sunnudag í Kandy-héraði eftir jarðarför vörubílstjóra sem lést eftir slagsmál við fjóra múslima. Óljóst er hvers vegna mennirnir flugust á en eftir jarðarförina réðust öfgabúddistar á verslanir í eigu múslima. Lík eins múslima fannst í húsi sem brunnið hafði til grunna í gær og telur lögregla að um íkveikju sé að ræða.
Birtist í Fréttablaðinu Mjanmar Srí Lanka Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira