„Barnaverksmiðjupabbinn“ réttmætur faðir barnanna þrettán Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. febrúar 2018 06:54 Lögmaður Mitsutoki Shigeta greindi fréttamönnum frá úrskurðinum fyrir utan dómshúsið í morgun. Pabbinn var sjálfur ekki á svæðinu. Vísir/Getty
Dómstóll í Bangkok, höfuðborg Tælands, staðfesti nú í morgun að japanskur maður sem eignaðist 13 börn með tælenskum staðgöngumæðrum væri réttmæður faðir barnanna. Úrskurðurinn mun að öllum líkindum leiða til þess að maðurinn, hinn 28 ára gamli Mitsutoki Shigeta, fari fram á fullt forræði yfir börnunum. Mál Shigeta hefur verið á milli tannanna á fólki allt frá því árið 2014 þegar í ljós kom að hann hafi alls eignast rúmlega tylft barna með staðgöngumæðrum í Tælandi. Fréttaskýrendur tala alla jafna um málið sem „barnaverksmiðjuna“ en málið varð til þess að Tæland bannaði útlendingum að eignast börn með þarlendum staðgöngumæðrum. Shigeta var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna í dag, þegar tilkynnt var að mæðurnar höfðu fyrirgert rétti sínum á forræði yfir börnunum. Í tilkynningu frá dómstólnum í Bangkok kemur fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að viðurkenna Shigeta sem réttmætan föður barnanna. Um tíma var þó óttast að sá japanski væri meðlimur mansalshrings og hefði í hyggju að selja börnin. Hvað annað gæti vakað fyrir manni sem eignast svona mörg börn með staðgöngumæðrum, spurðu Tælendingar sig. Shigeta var til að mynda undir smásjá Interpol fyrst eftir að mál hans kom upp og gerð húsleit í íbúð hans í Bangkok. Þar fann lögreglan níu ungabörn, aðstoðarkonur og þungaða staðgöngumóður. Shigeta stakk af frá Tælandi eftir húsleitina en var síðar kærður af tælenska félagsmálaráðuneytinu sem dró forræði hans yfir börnunum í efa. Því máli lauk svo með sigri hans í dag sem fyrr segir.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira