Breyta framburði sínum í stóra Instagram-kókaín málinu Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 06:28 Melina Roberce og Isabelle Lagace sáttar með lífið á ferð sinni um heiminn áður en þær voru handteknar með fjöldamörg kíló af kókaíni í Ástralíu. INSTAGRAM
Tveir kanadískir ríkisborgarar hafa játað að hafa reynt að smygla umtalsverðu magni kókaíns til Ástralíu með skemmtiferðaskipi árið 2016. Málið vakti mikla athygli og gerði Vísir því greinargóð skil á sínum tíma.Sjá einnig: Reyndu að smygla 100 kílóum af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi og birtu myndir úr ferðinni á InstagramÞegar málið kom fyrst upp voru þrír Kanadamenn handteknir í aðgerðum lögreglunnar, tvær konur og einn karl. Hin 23 ára gamla Melina Roberge og Andre Tamine, karlmaður á sjötugsaldri, neituðu upphaflega að hafa átt nokkurn þátt í því að flytja kókaínkílóin 95 til Sydney um borð í skemmtiferðaskipinu MS Sea Princess um mitt ár 2016. Þau hafa hins vegar breytt framburði sínum og játað á sig sök. Búast má við því að réttarhöld yfir þeim hefjist í næstu viku.35 kíló af kókaíni fundust hjá stelpunum en 60 kíló hjá karlinum.Landamæravarsla ÁstralíuHin konan, hin liðlega þrítuga Isabelle Lagacé, var dæmd fyrir aðild sína að málinu í nóvember síðastliðnum. Hún hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm og háa fjársekt. Verðmæti fíkniefnanna er talið nema um 1,7 milljörðum íslenskra króna og er um að ræða mesta magn sem ástralska lögreglan hefur lagt hald á, á skipi eða bát, í einu og sömu aðgerðinni. Það sem vakti einna mesta athygli við málið er að þær Lagacé og Roberge birtu myndir úr fíkniefnaferðinni á Instagram. Á myndunum sjást þær í miklu stuði á þessari sjö vikna löngu siglingu, frá Southampton í Englandi til Sydney. Þegar skipið kom svo til hafnar í Ástralíu runnu hins vegar á þær tvær grímur þegar lögregluhundar þefuðu uppi kókaínið. Þær höfðu geymt um 35 kíló í káetunni sinni en hin 60 kílóin fundust í káetu Tamine. Sem fyrr segir mega Roberge og Tamine búast við því að hljóta dóm síðar á þessu ári.
Tengdar fréttir Reyndu að smygla 100 kílóum af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi og birtu myndir úr ferðinni á Instagram Eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsisvist. 30. ágúst 2016 23:50 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Reyndu að smygla 100 kílóum af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi og birtu myndir úr ferðinni á Instagram Eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsisvist. 30. ágúst 2016 23:50