Fulltrúar Hugarafls vonsviknir með Ásmund Einar Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 28. febrúar 2018 18:47 Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra fundaði með fulltrúm Hugarafls í gær. Vísir/Eyþór
Hugarafl sendi frá sér fréttatilkynningu í dag um vonbrigði sín með fund fulltrúa Hugarafls með Ásmundi Einari Daðasyni félagsmálaráðherra þann 27. febrúar síðastliðinn. „Ljóst var strax í upphafi fundar að ráðherra hafði ekki gefið sér tíma í að kynna sér málefni GET og Hugarafls og mikill tími fór því í að kynna starfsemina sem fram fer í Borgartúni 22. Eftir kynninguna tjáði ráðherra fulltrúum Hugarafls að félagsmálaráðuneytið teldi það ekki í sínum verkahring að koma að málinu og vísað til baka á heilbrigðisráðherra.“ Segja talsmenn samtakanna að það sé ljóst að þegar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi sagt í pontu á Alþingi að vel væri búið um framtíð Hugarafls af hálfu félagsmálaráðuneytisins, hafi verið orðin tóm. „Svör félagsmálaráðherra voru skýr um að ekkert fjármagn væri að koma frá ráðuneyti félagsmála til að tryggja starfsemi Hugarafls eftir 1. september. Það er því allt útlit fyrir að styrkir frá félagsmálaráðuneyti skerðist til Hugarafls um 2.5 milljónir árið 2018, í stað þess að bætt sé í þegar mest á reynir. Og tveggja ára samningur upp á 17 milljónir við Vinnumálastofnun dugar skammt til að sinna þeim mikla fjölda notenda sem leitar til okkar í Borgartúnið,“ segir í tilkynningunni.Geta ekki beðið mikið lengur Telur Hugarafl að innan ráðuneyta velferðarmála sé ekki skilningur á alvarlegri stöðu notenda GET og Hugarafls eða stöðu öflugra grasrótarsamtaka sem barist hafa fyrir réttindum og bættri þjónustu fyrir fólk með geðræna erfiðleika til margra ára. „Skilaboð fulltrúa Hugarafls til félagsmálaráðherra voru skýr um að samtökin gætu ekki beðið miklu lengur meðan ráðherrar velferðarmála henda notendum geðheilbrigðiskerfisins og grasrótarsamtaka á milli sín. Allra síst þegar þeir sömu ráðherrar eiga að vera að tryggja að unnið sé eftir nýjum verkferlum geðheilbrigðisáætlunar byggða á samþættingu og samfellu milli þessara tveggja kerfa. Miklir annmarkar blasa nú þegar við á framkvæmd geðheilbrigðisáætlunar sem augljóslega bitna á gæðum geðheilbrigðisþjónstu á Íslandi. Við erum bókstaflega að tala um að fólk með geðræna erfiðleika er skilið eftir á götunni í skjóli nýrrar geðheilbrigðisáætlunar og það er talið eðlilegt af hálfu stjórnsýslu og ráðherra velferðarmála.“ Kemur fram í tilkynningunni að Hugarafl og GET finni fyrir miklum stuðningi í samfélaginu. Hugarafl er starfrækt fyrir alla þá sem hafa upplifað geðræna erfiðleika og aðstandendur þeirra. Þar er einstaklingnum veittur stuðningur við að ná bata og stjórn á eigin lífi með einstaklingsmiðaðari nálgun. Sérstaða Hugarafls er persónuleg nálgun, samstarf fagfólks og notenda geðheilbrigðisþjónustunnar á jafningjagrunni.
Tengdar fréttir Enn vegið að Hugarafli sem missir húsnæðið Það hefur alvarlegar afleiðingar fyrir starfsemi Hugarafls að leggja niður teymi Geðheilsu – eftirfylgdar. Samtökin munu missa húsnæði sitt í sumar. Stjórn Hugarafls fundar í dag um næstu skref í baráttunni fyrir tilvist samtakanna. 22. janúar 2018 05:00 Geta engu lofað en vilja að Hugarafl geti haldið starfi sínu áfram Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar, félags-og jafnréttismálaráðherra, segir að fundur hans og Sigrúnar Gunnarsdóttur, aðstoðarmanns Óttars Proppé, heilbrigðisráðherra, með Hugarafli í dag hafi verið mjög gagnlegur og góður. 4. apríl 2017 16:01 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Enn vegið að Hugarafli sem missir húsnæðið Það hefur alvarlegar afleiðingar fyrir starfsemi Hugarafls að leggja niður teymi Geðheilsu – eftirfylgdar. Samtökin munu missa húsnæði sitt í sumar. Stjórn Hugarafls fundar í dag um næstu skref í baráttunni fyrir tilvist samtakanna. 22. janúar 2018 05:00
Geta engu lofað en vilja að Hugarafl geti haldið starfi sínu áfram Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar, félags-og jafnréttismálaráðherra, segir að fundur hans og Sigrúnar Gunnarsdóttur, aðstoðarmanns Óttars Proppé, heilbrigðisráðherra, með Hugarafli í dag hafi verið mjög gagnlegur og góður. 4. apríl 2017 16:01