Ráðherrum og aðstoðarmönnum bannað að sofa saman Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. febrúar 2018 08:28 Barnaby Joyce hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Vísir/EPA
Forsætisráðherra Ástralíu hefur lýsti því yfir að hann muni koma til með að banna allt kynlíf milli ráðherra sinna og starfsmanna þeirra. Afhjúpanir síðustu daga hafa leitt í ljós að Barnaby Joyce, varaforsætisráðherra landsins, hafði átt í ástarsambandi með einum aðstoðarmanni sínum sem yfirmaður hans, Malcolm Turnbull, lýsir sem „grófum dómgreindarbresti.“ Stjórnarandstæðingar hafa kallað eftir afsögn aðstoðarforsætisráðherrans. Joyce er nú í ótímabundnu leyfi meðan rannsakað er hvort hann hafi brotið siðareglur ráðherra. Hann og forsætisráðherrann eru þó harðir á því að engar reglur, að minnsta kosti ekki núgildandi, hafi verið brotnar í þessu tilfelli. Forsætisráðherrann sagði þó á blaðamannafundi að hann ætli sér að gjörbylta hinum úrsérgengnu siðareglum enda þurfi ráðherrar að haga sér sómasamlega. „Þeir eiga ekki að sofa hjá aðstoðarmönnum sínum - punktur,“ sagði Turnbull. Joyce hefur sem aðstoðarforsætisráðherra hlaupið í skarðið fyrir Turnbull þegar annir eru miklar. Hann mun þó ekki fljúga til Bandaríkjanna í næstu viku eins og fyrirhugað var. Hver mun fara fyrir áströlsku sendinefndinni er þó ekki vitað á þessari stundu. Ástarævintýrið hefur tröllriðið áströlskum fjölmiðlum síðustu daga. Greint var frá því á miðvikudag í síðustu viku að Joyce og fjölmiðlafulltrúinn Vikki Campion væru elskhugar. Aðstoðarforsætisráðherrann hefur verið giftur Natalie Joyce frá árinu 1993.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira