Kínverjar æfir vegna leirþumals Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. febrúar 2018 08:17 Hér má sjá einn hinna þúsunda leirhermanna Kínakeisara. Vísir/AFP
Kínversk stjórnvöld hafa kallað eftir því að maður sem sakaður er um að hafa stolið þumli hljóti „þunga refsingu.“ Þumallinn tilheyrði kínverskum leirhermanni sem var til sýnis á safni í Philadelphiu í Bandaríkjunum. Styttan er rúmlega 2000 ára gömul og metin á rúmlega 450 milljónir íslenskra króna. Karlmaðurinn var í liðinni viku ákærður fyrir listaverkaþjófnað en gengur laus eftir að hafa greitt tryggingu. Hann er sagður hafa laumast inn í rýmið þar sem styttan var til sýnis í miðju teiti sem haldið var á listasafninu í desember síðastliðnum. Því næst tók hann sjálfsmynd af sér og styttunni áður en hann sést, í upptökum úr öryggismyndavél, brjóta eitthvað af styttunni og stinga því í vasann. Því næst hljóp hann á brott. Nokkrum dögum síðar tóku starfsmenn safnsins þá eftir því að þumalinn vantaði á styttuna. Alríkislögreglan hafði að lokum hendur í hári mannsins sem viðurkenndi að hafa geymt þumalinn í skrifborðsskúffunni sinni. Kínversk stjórnvöld segjast ætla að senda tvo sérfræðinga til Philadelphiu til að meta tjónið. Haft er eftir talsmanni stjórnvalda á vef breska ríkisútvarpsins að farið verði fram á himinháar skaðabætur. Styttan er hluti af hinum svokalla Leirher fyrsta Kínakeisarans. Leirherinn samanstendur af um 9000 styttum sem fundust fyrir tilviljun árið 1974. Fundurinn er almennt talinn einn sá stærsti sinnar tegundar og er Leirherinn meðal annars á heimsminjaskrá UNESCO.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira