Stórsigur fyrir fíla Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. febrúar 2018 06:52 Fílar geta nú andað léttar. Vísir/Getty
Þingmenn í Hong Kong samþykktu í gær að banna verslun með fílabein í landinu - sem lengi hefur verið talið stærsta markaðssvæði fílabeins í heiminum. Baráttufólk fagnar ákvörðuninni og segir hana vera stórsigur og „vonarglætu“ fyrir fíla víðsvegar um heiminn. Nágrannaríkið Kína samþykkti sambærileg lög á síðasta ári en fílabein hefur verið eftirsótt í austurlöndum fjær svo öldum skiptir. Bannið í Hong Kong tekur gildi í skrefum og verður sala á fílabeini með öllu ólögleg árið 2021. Áður en til atkvæða á þinginu komu hafði hópur mótmælenda safnast saman fyrir utan þinghúsið. Kyrjuðu þeir slagorð og héldu á skiltum þar sem meðal annars stóð: „Þurfiði virkilega prjóna úr fílabeini?“ Verslun með dýratennur, ekki síst fílabein, á sér langa sögu í Hong Kong og hafa áhugasamir kaupendur flykkst til sjálfstjórnarsvæðisins í á annað hundrað ár. Flestir kaupendurnir, eða rúmlega 90 prósent, eru frá Kína ef marka má frétt breska ríkisútvarpsins. Alþjóðlegt verslunarbann með fílabein tók gildi árið 1989 og er talið að um 670 tonna birgðir af fílabeini hafi þá verið í Hong Kong. Á pappírunum má einungis versla með þessar birgðir í landinu en dýraverndunarsinnar hafa bent á að fjölmargt misjafnt þrífist í skugga þessarar heimildar. Síðastliðið sumar lagði lögreglan í Hong Kong hald á rúmlega 7,2 tonn af fílabeini. Aldrei áður hefur annað eins magn af fílabeini verið haldlagt í einni rassíu.
Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira