Þolendur barnaníðsins fá bætur og formlega afsökunarbeiðni Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. febrúar 2018 05:45 Malcolm Turnbull segir niðurstöður skýrslunnar hryggilegar. VÍSIR/AFP
Forsætisráðherra Ástralíu hefur lýst því yfir að hann muni biðja alla Ástrala sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi í æsku formlega afsökunar fyrir hönd ríkisins. Þá verða þeim einnig bætur sem gætu numið um 10 milljónum íslenskra króna. Yfirlýsing Malcoms Turnbull kemur í kjölfar skýrslunnar, sem byggði á fjögurra ára rannsóknarvinnu, sem sýndi fram á að tugþúsundir ástralskra barna hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi innan stofnanna, ríkisfyrirtækja og félagasamtaka í Ástralíu. Nánar má fræðast um skýrsluna hér: Kerfisbundið barnaníð í ÁstralíuOfbeldið hafði staðið yfir í áratugi og átti sér stað í kirkjum, skólum og íþróttafélögum. Talið er að þolendur geti verið rúmlega 60 þúsund. Turnbull segist ætla að flytja afsökunarbeiðnina síðar á þessu ári og verður hún skrifuð í samráði við fulltrúa þolenda. Rannsóknarnefndin lagði fram um 400 tillögur að því hvernig mætti vinna á hinu kerfisbundna barnaníði. Meðal þeirra var að kaþólska kirkjan endurskoðaði stefnu sína um skírlífi presta. „Tugir þúsunda barna hafa verið misnotuð kynferðislega innan margra ástralskra stofnana. Við munum aldrei komast að því hver rétt tala er. Hér er ekki um nokkra „svarta sauði“ að ræða. Eitthvað alvarlegt er að stærstu stofnunum samfélagsins,“ segir í skýrslu nefndarinnar sem byggði á viðtölum við næstum 8000 manns. Áströlsk stjórnvöld hafa eyrnamerkt um 2,3 milljarða íslenskra króna í bótagreiðslur til eftirlifandi þolenda. Breska ríkisútvarpinu reiknast til að það gæti þýtt að hver og einn gæti fengið á annan tug milljóna í sinn hlut.
Tengdar fréttir Kerfisbundið barnaníð í Ástralíu Skýrsla upp úr fimm ára rannsókn ástralskrar rannsóknarnefndar birtist í gær. Hún sýnir fram á að alvarlegum brotum hafi verið leyft að viðgangast innan helstu samfélagsstofnana Ástralíu. 16. desember 2017 07:00 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Kerfisbundið barnaníð í Ástralíu Skýrsla upp úr fimm ára rannsókn ástralskrar rannsóknarnefndar birtist í gær. Hún sýnir fram á að alvarlegum brotum hafi verið leyft að viðgangast innan helstu samfélagsstofnana Ástralíu. 16. desember 2017 07:00