Lést við sjálfsmyndatöku á lestarteinum Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. febrúar 2018 06:54 Hér má sjá lestarstöð í Bangkok, sem þó tengist efni fréttarinnar ekki beint. LILLIAN SUWANRUMPHA
Kona lést eftir að hún reyndi að taka sjálfsmynd með vini sínum á lestarteinum í Tælandi. Slysið átti sér stað aðfaranótt fimmtudags í höfuðborginni Bangkok og rannsaka yfirvöld nú tildrög þess. Vinur þeirra, sem fygldist skelkaður með því þegar lestin hafnaði á tvíeykinu, segir að þau hafi setið að sumbli um kvöldið. Þegar óminnishegrinn fór að gera vart við sig hafi þau ákveðið að taka mynd af sér við hlið kyrrstæðrar lestar. Þau hafi hins vegar ekki tekið eftir lestinni sem kom aðvífandi úr gagnstæðri átt. Konan, sem var 24 ára, lést af sárum sínum en annar fótleggur hennar rifnaði af við áreksturinn. Vinur hennar, sem einnig varð fyrir lestinni, slasaðist að sama skapi alvarlega. Að sögn breska ríkisútvarpsins fjölgar þeim sem látast á hverju ári við það að taka sjálfsmyndir af sér í háskalegum aðstæðum. Þannig virðist það nú vera í tísku á Indlandi að taka myndband af sér á lestarteinum og stökkva af þeim í þann mund sem lestin keyrir framhjá. Indverskur karlmaður lést við athæfið í janúar og fimm ungmenni í landinu urðu fyrir lest þegar þau reyndu slíkt hið sama undir lok síðasta árs.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira