Palatia Limbach er langt frá því að vera frægasta fótboltafélag Þýskalands enda spilar það í sjöttu deild þýska fótboltans. Það kemur frá Kirkel sem er bær við landamærin að Frakklandi.
Hjá félaginu æfa hinsvegar fjöldi barna og unglinga og því vakti uppgötvun starfsmanna þess mikinn óhug í samfélaginu sem og í öllu Þýskalandi.
Það fundust nefnilega tvö rakvélablöð í grasinu þar sem börnin voru að æfa fótbolta og það er óhætt að segja að mörgum hafi verið mjög brugðið.
Palatia Limbach setti síðan eftirfarandi færslu inn á Twitter-síðu sína.
Skilaboð þýska félagsins voru skýr og þeim var beint sérstaklega til glæpamannsins.
„Gerir þú þér grein fyrir því hvað gæti hafa gerst? Hvað ætlaðir þú þér að ná fram með þessu. Við munum finna þig,“ skrifaði starfsmaður Palatia Limbach undir myndinni.
Rakvélablöðin fundust um síðustu helgi en á þessi gervigrasi þá æfa um tvö hundruð börn og unglingar og um fimmtíu fullorðnir í hverri viku.
„Ég get ekki séð fyrir mér að þetta sé dæmi um að einhver hafi misst tvo rakvélablöð úr buxunum sínum og týnt þeim. Þessum rakvélablöðum var komið þarna fyrir með hreinum ásetningi,“ sagði Dirk Schmidt, framkvæmdastjóri félagsins í viðtali við Bild.