Stefna íslenskra stjórnvalda sögð mannfjandsamleg í garð hælisleitenda

Hópur fanga gekk í skrokk á ungum hælisleitanda á Litla-Hrauni á þriðjudag. Hælisleitandinn situr í fangelsi vegna ítrekaðra flóttatilrauna. Tennur brotnuðu í manninum og var hann illa marinn eftir árásina.
Í ályktun stjórnar Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, er mál mannsins sagt enn eitt dæmið um vanrækslu íslenskra stjórnvalda og mannfjandsamlega stefnu. Auglýsa þeir eftir „dómsmálaráðherra með samvisku“.
Einnig kemur fram að maðurinn hafi sagst vera sextán ára þegar hann kom til landsins. Tanngreining sem yfirvöld létu gera hafi hins vegar leitt í ljós að hann væri átján ára. Bæði UNICEF og Rauði krossinn hafi óskað eftir að að tanngreiningum af þessu tagi verði hætt til að meta aldur hælisleitenda.
Ungir jafnaðarmenn segjast ítrekað hafa mótmælt hvernig íslensk stjórnvöld vísi börnum sem leiti hælis hér aftur út í óvissuna. Börn eigi að njóta vafans, hvort sem þau eru sautján eða átján ára gömul.
„Ábyrgð er fangelsisyfirvalda, ábyrgð er þingsins en mest er þó ábyrgð dómsmálaráðherra sem rekur mannfjandsamlega stefnu gagnvart fólki á flótta og annarra sem hafa talað um að mæta hælisleitendum með „járnhnefa“. Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að gripið verði til tafarlausra aðgerða og lýsa enn og aftur yfir vantrausti á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra,“ segir í ályktuninni.
Tengdar fréttir

Segir kerfið algjörlega hafa brugðist ungum hælisleitenda: „Hann er bara ekki virtur sem manneskja á Íslandi“
Kerfið hefur algjörlega brugðist ungum hælisleitanda sem varð fyrir grófri líkamsárás á Litla Hrauni í vikunni, að sögn verjanda hans.

Segir að Houssin eigi ekki heima innan um harðsvíraða glæpamenn
Inga Rún Sigfúsdóttir yfirfélagsráðgjafi í Fjarðabyggð segir að búið sé að margbrjóta á mannréttindum Houssin sem varð fyrir hrottalegri líkamsárás á Litla Hrauni.

Árásin á Litla Hrauni: Fanginn er kominn í fangelsið á Hólmsheiði
Páll Winkel furðar sig á gagnrýni verjanda fangans.

Hælisleitandi varð fyrir hrottalegri árás á Litla Hrauni: „Grafalvarlegt og sorglegt atvik“
Ungur hælisleitandi varð fyrir grófri líkamsárás á Litla Hrauni síðdegis í gær. Hópur fanga tók sig til og gekk í skrokk á honum, en hann situr í fangelsi fyrir ólögmætar flóttatilraunir.

Annar þeirra sem mest höfðu sig í frammi hefur oft ráðist á fanga
Átján ára piltur varð fyrir alvarlegri árás á Litla-Hrauni í vikunni. Hann er hælisleitandi frá Marokkó. Annar þeirra fanga sem mestan þátt eru sagðir eiga að árásinni hefur ítrekað ráðist að samföngum sínum með ofbeldi.