Ástralir í sárum eftir sjálfsvíg stúlku Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. janúar 2018 07:23 Amy „Dolly“ Everett öðlaðist frægð sem andlit ástralsks hattafyrirtækis. Hér sést hún í einni af auglýsingum þess þegar hún var átta ára gömul. AKUBRAHATS
Fjórtán ára áströlsk stúlka, sem var andlit hattafyrirtækisins Akubra þar í landi, svipti sig lífi eftir að hafa orðið fyrir grófu einelti á netinu. Faðir stúlkunnar kallar eftir meiri umræðu um netníð og segir hann að þannig megi halda nafni hennar, Amy „Dolly“ Everett, á lofti. Hattafyrirtækið hefur sent fjölskyldunni samúðarkveðju og vonast það til að einelti verði sagt stríð á hendur. Talið er að fimmtungur allra ástralskra ungmenna hafi orðið fyrir einelti á síðasta ári. Í færslu á Facebook segir faðirinn, Tick Everett, að dóttir hans hafi viljað „losna frá illsku heimsins“ en að hún hafi ekki gert sér grein fyrir „sársaukanum og tómleikanum sem hún skildi eftir.“ Hann lýsir því ekki í hverju eineltið fólst en vonast þó til að andlát dóttur sinnar verði til þess að vekja máls á vandanum. Þannig megi jafnvel bjarga mannslífum frá sömu örlögum. Í færslunni býður hann jafnframt hrekkjusvínunum, sem lagt höfðu Amy í einelti, í útförina. Hann vill þannig að þau sjái hina „fullkomnu örvinglun“ sem gjörðir þeirra leiddu til.Gæti hafa verið hver sem er Amy Everett hafði verið andlit hins víðfræga ástaralska hattafyrirtækis Akubra þegar hún var átta gömul og starfaði enn á þeirra vegum. Að sögn fyrirtækisins hafði „þyrmt yfir hana“ skömmu áður en hún lést. „Það er undir okkur komið að stöðva allt einelti sem við verðum vitni að. Dolly gæti verið dóttir okkar allra,“ segir í Facebook-færslu fyrirtæksins.Ef marka má opinbera tölfræði í Ástralíu, sem rakin er á vef breska ríkisútvarpsins, virðist einelti hafa færst í auknum mæli úr raunheimum yfir á internetið. Þá hefur sjálfsvígum fólks á aldrinum 15 til 24 ára fjölgað á síðustu árum.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira