Brenndi fangamark sitt í lifur sjúklinga Kjartan Kjartansson skrifar 12. janúar 2018 16:43 Aðfarir læknisins eru ekki sagðar hafa haft áhrif á árangur aðgerðanna. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/Getty
Breskur skurðlæknir sem brenndi fangamerk sitt í lifur sjúklinga í líffæraskiptiaðgerðum hefur verið dæmdur til að greiða sekt og til að sinna samfélagsþjónustu. Saksóknari segir að málið sé fordæmalaust í sakamálasögu Bretlands. Simon Bramhall játaði sig sekan af ákæru í tveimur liðum í síðasta mánuði. Hann var sakaður um að hafa beitt tæki sem vanalega er notað til að loka blæðandi æðum til að brennimerkja líffærin með upphafsstöfum sínum, að sögn AP-fréttastofunnar.Hann lét af störfum við Sjúkrahús Elísabetar drottningar í Birginham árið 2014 þegar annar læknir uppgötvaði brot hans. Sjúkrahúsið fullyrðir að aðfarir læknisins hafi ekki haft nein áhrif á árangur aðgerðanna. Dómarinn í málinu sagði að hroki Bramhall hafi gengið svo langt að hann hafi orðið glæpsamlegur. Þrátt fyrir að sjúklingarnir hafi ekki orðið fyrir líkamlegum skaða hafi þeir orðið fyrir sálrænu áfalli þegar þeir komust að því hvað læknirinn hafði gert. Bramhall þarf að greiða 10.000 punda sekt, jafnvirði um 1,4 milljóna króna.
Mest lesið Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Erlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Rex Heuermann fær lífstíðardóm Erlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Fleiri fréttir Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Virðast ekki vilja takmarka sig við tíu milljónir Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Spánarkonungur lánaði Leó einkaþotuna Dramatík í tveimur þáttum: Gervigreindarbóla og óður um yfirráð Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Sjá meira
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“