Veðurhorfur á landinu: Hver gráða skiptir máli Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. janúar 2018 08:03 Það er betra að passa sig svo maður fljúgi ekki á hausinn. VÍSIR/STEFÁN
Búast má við strekkings sunnan átt með éljum sunnan og vestantil á landinu í dag. Það hvessir með kvöldinu og reikna má með að úrkoma verði nær samfelld í dag. „Þar sem hitastig verður nálægt frostmarki, þá mun hver gráða til eða frá skipta miklu máli hvort úrkoman verði í formi rigningar eða slyddu eða slyddu og snjókomu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Líklegt er að nær ströndinni ætti úrkoman að vera í formi rigningar en breytast í slyddu eða snjókomu eftir því sem innar í landið er farið. Fljótlega eftir miðnætti snýst síðan í hvassa suðvestanátt, kólnar og fellur úrkoman sem snjóél. „Útlit er fyrir að það hvessi enn frekar í éljunum og skyggni verði mjög takmarkað sem aftur gæti valdið staðbundnum truflunum í umferðinni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu Sunnan og suðvestan 10-18 m/s og él eða skúrir, en léttskýjað NA-lands. Rigning eða slydda á S- og V-verðu landinu í kvöld, en snjókoma í uppsveitum. Hiti 0 til 5 stig. Snýst í suðvestan 13-23 með éljum eftir miðnætti, fyrst um landið vestanvert. Heldur hægari og léttir víða til NA- og A-lands á morgun. Vægt frost víðast hvar.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag:Gengur í suðvestan 13-20 með dimmum éljum, hvassast við SV-ströndina, en léttir til eystra. Kólnandi veður, frost víða 1 til 6 stig um kvöldið, en frostlaust syðst.Á mánudag:Snýst í norðanátt, víða 10-18 m/s, en lengst af mun hægari breytileg átt austantil. Éljagangur, en rofar smám saman til á S-verðu landinu. Frost 1 til 12 stig, mildast syðst.Á þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag: Norðlægar áttir og snjókoma eða él á norðanverðu landinu, en úrkomulítið syðra. Áfram kalt í veðri, en minnkandi frost undir helgi.
Veður Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira