Hættuástand vegna kúlufiska Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. janúar 2018 07:11 Ef ítrustu varúðar er ekki gætt getur reynst hættulegt að leggja sér kúlufiska til munns. Vísir/afp
Borgaryfirvöld í japönsku borginni Gamagori hafa lýst yfir hættuástandi eftir að í ljós kom að fiskverkandi þar í borg hafði sent frá sér eitraða kúlufiska. Kúlufiskur þykir mikið lostæti í Japan en ef hann er ekki verkaður rétt og lifrin skorin í burtu, getur hann verið bráðdrepandi. Nú virðist sem fimm pakkar af eitruðum kúlufiski hafi verið seldir í stórmarkaði í borginni. Þrír hafa þegar fundist áður en eigendur innbyrtu fiskinn en tveir pakkar eru enn ófundnir. Árlega veikjast þónokkrir í Japan eftir að hafa gætt sér á kúlufiski og dauðsföll eru nokkur á hverju ári. Borgaryfirvöld í Gamagori hafa sett neyðaráætlun í gang og hvatt borgarbúa til að skila inn öllum pakkningum af kúlufiskum. Í samtali við breska ríkisútvarpið segir borgarstarfsmaður að viðvörunum til íbúa sé reglulega útvarpað í viðvörunarkerfi borgarinnar. Kúlufiskur nýtur mikilla vinsælda á veturna og er alla jafna notaður í súpur eða snæddur hrár eins og sashimi. Í lifur, eggjastokkum og skráp fisksins má finna snefil af eitrinu tetrodotoxin og af þeim sökum þarf sérstaka þjálfun og leyfi til að verka kúlufiska. Ekkert mótefni er við eitrinu. Tetrodotoxin hefur áhrif á miðtaugakerfið og lamar það fyrst munninn, því næst restina af líkamanum og leiðir að lokum til dauða.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira