Bayeux-refillinn fer á flakk Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. janúar 2018 06:41 Orrustan við Hastings lifnar við á Bayeux-reflinum. Vísir/Getty
Talið er að Bayeux-refillinn, eitt af mestu stórvirkjum listasögunnar, verði fluttur frá Frakklandi til Englands þar sem hann mun verða hafður til sýnis. Er þetta í fyrsta sinn í 950 ár sem refillinn yfirgefur franska grundu.Breska ríkisútvarpið telur að Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, muni tilkynna um lánið til Breta í Englandsheimsókn sinni á morgun. Bretar gætu þó þurft að bíða í allt að fimm ár áður en þeir geta barið refilinn augum enda verður flutningurinn á þessum 70 metra langa, aldagamla klæðisstrendingi enginn hægðarleikur. Á Bayeux-refilinum er orrustan við Hastings árið 1066 rakin og hefur hann verið varðveittur í safni skammt frá dómkirkjunni í Bayeux í Normandí á undanförnum árum. Refillinn hefur sjaldan verið fluttur úr stað enda orðinn næstum 1000 ára gamall og viðkvæmur sem slíkur. Engu að síður er búist við því að Macron muni tilkynna um lánið á morgun á fundi hans með forsætisráðherra Bretlands, Theresu May. Viðræður milli menningarmálaráðuneyta landanna eru sagðar hafa staðið yfir undanfarna mánuði. Ekki liggur þó fyrir hvar refilinn mun verða hafður til sýnis í Englandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bretar hafa falast eftir stórvirkinu. Það gerðu þeir til að mynda fyrir krýningu Elísabetar Englandsdrottningar árið 1953 og svo aftur á 1000 ára afmæli orrustunnar við Hastings árið 1966. Þá var eftirgerð í fullri stærð sett upp í safni í Reading á Englandi árið 1886. Uppruni refilisins er vinsælt þrætuepli meðal sagnfræðinga en flestir telja í dag að hann hafa verið saumaður af nunnum í Englandi eftir pöntun frá franska bisknum Odo af Bayeux.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira